Viðskipti innlent

Jónína nýr forstjóri Coripharma

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Jónína Guðmundsdóttir, nýr forstjóri Coripharma.
Jónína Guðmundsdóttir, nýr forstjóri Coripharma. Aðsend

Jónína Guðmundsdóttir hefur tekið við stöðu forstjóra íslenska lyfjafyrirtækisins Coripharma. Bjarni K. Þorvarðarson fráfarandi forstjóri tekur við stjórnarformennsku. Þá hefur Valur Ragnarsson tekið sæti í stjórn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Þar segir jafnframt að Jónína hafi sinnt stjórnunarstöðum í lyfjageiranum um 20 ára skeið. Hún leiddi viðskiptaþróun Medis í 15 ár og var lengi staðgengill forstjóra. Hún var áður framkvæmdastjóri Medis á Íslandi. Jónína lauk meistaragráðu í lyfjafræði við Háskóla Íslands 1999.

Bjarni K. Þorvarðarson sem hefur verið forstjóri félagsins frá stofnun þess árið 2018 verður áfram einn af stærstu hluthöfum Coripharma og tekur við stjórnarformennsku á stjórnarfundi í næstu viku.

Valur Ragnarsson, fyrrverandi forstjóri Medis, hefur tekið sæti í stjórn Coripharma. Valur hefur starfað hjá lyfjafyrirtækjum í þrjá áratugi og er menntaður lyfjafræðingur. Hann hefur jafnframt setið í stjórn nokkurra lyfjafyrirtækja.

Aðrir í stjórn Coripharma eru Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, fráfarandi stjórnarformaður, Arnór Gunnarsson, Hrafn Árnason, Ólöf Þórhallsdóttir og Sigurgeir Guðlaugsson.

„Ég hef fylgst með Coripharma frá upphafi og er full eftirvæntingar að fá að vinna með okkar frábæra starfsfólki. Þetta er teymi á heimsmælikvarða í þróun og framleiðslu samheitalyfja,“ er m.a. haft eftir Jónínu í tilkynningu.

Coripharma er íslenskt lyfjafyrirtæki með 110 starfsmenn. Frá því að félagið hóf starfsemi sína árið 2018 hefur það keypt alla lyfjaframleiðslu og lyfjaþróun Actavis í Hafnarfirði. Coripharma sérhæfir sig í framleiðslu og þróun lyfja fyrir önnur lyfjafyrirtæki um heim allan, ásamt því að þróa sín eigin lyf.

Áætlað er að fyrsta samheitalyfið undir merkjum Coripharma komi á markað um mitt næsta ár. Félagið gerði nýverið samninga við tvö erlend lyfjafyrirtæki: annarsvegar Midas Pharma um samvinnu við framleiðslu og markaðssetningu á lyfjum til þriðja aðila, og hinsvegar STADA, eitt stærsta lyfjafyrirtæki heims, um pökkun á 700 milljónum taflna af lyfjum árlega í þrjú ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×