Innlent

Þeir sem veikjast mynda sterkara mótefni gagnvart veirunni

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir og Alma Möller, landlæknir á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir og Alma Möller, landlæknir á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag. Lögreglan/Júlíus

Engin ný kórónuveirusmit greindust síðasta sólarhringinn, hvorki á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans né hjá Íslenskri erfðagreiningu. Sóttvarnalæknir segir ekki ástæðu til þess að flýta tilslökun þó að góður árangur hafi náðst.

Sóttvarnalæknir segir ekki tilefni til þess að leggja djúpa merkingu í að engin jákvæð sýni hafi greinst síðasta sólarhringinn og að eflaus muni sjást dagar þar sem ekkert sýni greinist.

Sýni sem fóru í rannsókn síðasta sólarhringinn voru innan við tvö hundruð. Sóttvarnalæknir segir að samfélagsleg smit sé enn mjög lítið.

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir að safnað verði blóði til þess að flýta fyrir ónæmismælingum þegar þær byrja.Lögreglan/Júlíus

Ætla safna blóði til að flýta fyrir og undirbúa ónæmismælingar

Íslensk erfðagreining hefur tekið að sér að kanna ónæmismælingar og próf og því verði ekki strax farið í slíkar mælingar í samfélaginu.

„Við munum hins vegar fara af stað og safna blóði og vera tilbúin þegar að besta rannsóknin, eða rannsóknaraðferðin, liggur fyrir. Það er staðan núna. Það eru mjög merkilegar upplýsingar um þetta sem eru að koma í ljós núna hjá Íslenskri erfðagreiningu,“ sagði Þórólfur Guðason, sóttvarnalæknir á daglegum upplýsingafundi almannavarna og landlæknis.

Það sé að þeir sem veikist meira myndi sterkara mótefni gagnvart veirunni heldur en þeir sem veikjast minna.

Upplýsingafundur almannavarna og Landlæknis í dag.Lögreglan/Júlíus

Ólíklegra að við sáum engin smit dag eftir dag

Í dag tóku í gildi tilmæli um tveggja vikna sóttkví til allra þeirra sem koma til landsins og verður það í gildi til 15. maí. Þá engin ný smit greinist sé ekki ástæða til þess að flýta tilslökun en það að þó í stöðugri endurskoðun.

„Þó það komi núll núna þá er mjög líklegt að við munum sjá einhver tilfelli sólarhringinn og svo framvegis og mér fyndist mjög ólíklegt að við munum sjá núll dag eftir dag. Það getur líka verið að það gerist en mér finnst það ólíklegra,“ segir Þórólfur.

Alma Möller, landlæknir.Lögreglan/Júlíus

Kanna líðan þjóðarinnar á Covid-tímum

Embætti landlæknis í samvinnu við Vísindasvið Háskóla Íslands hafa hrundið af stað rannsókn á líðan þjóðarinnar á tímum Covid-19. Markmiðið er að afla þekkingar á líðan og lífsgæðum almennings á meðan faraldurinn gengur yfir. En öllum 18 ára og yfir verður boðið að taka þátt í rannsókninni.

„Við höfum kannski ekkert mjög nákvæmar upplýsingar og þess vegna erum við að fara í þessa rannsókn. Við vitum auðvitað til dæmis ef við tölum um kvíða og áhyggjur að þá hefur símtölum til heilsugæslunnar fjölgað töluvert en það eru ekki settar fleiri sjúkdómsgreiningar og það er ekki ávísað meira af lyfjum þannig að það bendir ekkert til þess að það séu alvarleg áhrif enn,“ sagði Alma Möller, landlæknir.

Hér má kynna sér rannsóknina.


Tengdar fréttir

Ekkert nýtt smit í fyrsta skipti frá upphafi faraldursins

Staðfest smit nýs afbrigðis kórónuveiru sem veldur Covid-19-sjúkdómnum eru enn 1.789 talsins hér á landi og hefur þeim ekki fjölgað á milli daga, í fyrsta skipti frá því að faraldurinn hófst. Tiltölulega fá ný sýni voru þó greind á milli daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×