Kia framlengir ábyrgðartíma Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 30. apríl 2020 07:00 Kia Niro
Kia hefur framlengt ábyrgðartíma allra ökutækja með upphaflegri 7 ára ábyrgð frá Kia sem hefði runnið út milli 1. febrúar til og með 31. maí 2020. Þetta er gert vegna ástands sem skapast hefur vegna COVID 19. Kia framlengir því ábyrgðartíma allra ökutækja sem uppfylla þessi skilyrði til og með 30. júní 2020 samkvæmt fréttatilkynningu frá Öskju. Með því vilja Kia og Bílaumboðið Askja, umboðsaðili Kia á Íslandi, koma til móts við eigendur Kia bifreiða sem gátu ekki farið með ökutæki sín í viðgerðir á ábyrgðartíma þeirra. Eigendum þessara bíla verður send tilkynning þessa efnis en umræddar bifreiðar voru skráðar árið 2013. Bílaumboðið Askja minnir á að nú eru bílaviðgerðir hluti af átakinu Allir vinna. Nú geta einstaklingar því sótt um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu við viðgerðir á fólksbifreiðum fari hún yfir 25.000 kr. auk virðisaukaskatts. Enn fremur bíður Askja 10% afslátt af Kia varahlutum samhliða viðgerðum. Askja er staðsett á Krókhálsi 11-13 og þar er fullkomið bílaverkstæði fyrir Kia bifreiðar til húsa.
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent