Höfundar Skaupsins í ár voru Hugleikur Dagsson, Lóa Hjálmtýsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Bragi Valdimar Skúlason og Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Leikstjóri skaupsins 2020 er Reynir Lyngdal.
Fjöldi þjóðþekktra leikara og skemmtikrafta birtist þá á skjám landsmanna í einum vinsælasta sjónvarpsviðburði hvers árs. Má þar nefna Pálma Gestsson, Katrínu Halldóru Sigurðardóttur, Jóhann G. Jóhannsson, Ladda, Sigurð Sigurjónsson, Sögu Garðarsdóttur, Jón Gnarr, Sölku Sól, Þorstein Bachmann og Sóla Hólm. Upptalningin er langt frá því að vera tæmandi, enda stórskotalið þjóðþekktra skemmtikrafta sem kom að gerð skaupsins að þessu sinni.
Hér að neðan má sjá brot af því sem íslenskir Twitter-notendur höfðu um Skaupið að segja.
Hlæ af öllum atriðunum í skaupinu svo það viti allir að ég fylgist með
— Bríet (@thvengur) December 31, 2020
Þessi dirty zoom brandari var ekki bara besti skets sem ég man eftir í #skaupið þetta var bara með betri sketsum sem ég man eftir EVER. 10/10!!!
— Starkaður Pétursson™ (@starkadurpet) December 31, 2020
Skaupið var frábært! Hló upphátt yfir pabbabrandaranum. Uppskar reyndar háð frá unglingum:
— Haukur Heiðar (@haukurh) January 1, 2021
“pabbi, þú veist að það er ekki flex að vera boomer”
jafna mig aldrei af þessu KO
Smá behind the scene...ég á síðasta orðið í skaupinu :) #skaupið pic.twitter.com/CN9GuxB6KT
— Gudni Halldórsson (@GudniKlipp) December 31, 2020
Mér fannst @VilhelmNeto að halda niðri í sér andanum lang lang lang lang lang laaaaang fyndnasti brandarinn #skaupið
— Inga (Yes Sir I Can) Boogie (@Inga_toff) December 31, 2020
Hvaða handsome devil lék mig í skaupinu?
— Daði Freyr 🥑 (@dadimakesmusic) December 31, 2020
Af hverju voru 160 leikarar í Skaupinu þegar Randver hefði getað leikið amk 85 hlutverk?
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) December 31, 2020
Hef hlegið 5x upphátt af skaupinu frá upphafi og öll skiptin voru í þessu villa neto atriði
— Daníel Ólafsson (@danielolafsson) December 31, 2020
Svona án gríns mjög erfitt að gera gott skaup fyrir þetta ár. Þetta tókst mjög vel. Mjög solid.
— Tommi Tanölg (@TomasJohannss) December 31, 2020
LÖGGUGRÍNIÐ
— Atli Jasonarson (@atlijas) December 31, 2020
Hahahahahahahahahaahahahahahaahahahahahahahahajahahaahahahajahahahahahaahahahahahahahahahahahahashshahahaha
Ég elskaði þetta skaup og hló og hló
— Kamilla Einarsdóttir (@Kamillae) December 31, 2020
finnst ég vera miðaldra, skildi held ég allt í skaupinu
— halla margret (@hallamargret3) December 31, 2020
Ég held það hefði ekki verið hægt að gera betra skaup um þetta ár. Ætla að sleppa því að gefa þeim báðum einkunn, skaupinu og árinu. #skaupið
— Halldór Auðar Svansson (@tharfagreinir) December 31, 2020
Leiðinlegasta skaup ever! #skaupið
— Kristinn Ríkharðsson (@KristinnRik) December 31, 2020
Það er búið að kalla fjórum sinnum hérna: Skaupið er byrjað! Hættið að hafa stórleikara í auglýsingum rétt fyrir skaup...
— Auðunn Blöndal (@Auddib) December 31, 2020
Fínt Skaup en ekkert 2001 level. Gísli Rúnar sem Árni Johnsen verður aldrei toppað, ALDREI!
— Guðmundur Egill (@gudmegill) December 31, 2020
Allt skaup sem snýst um grín en ekki pólitik er gott skaup enda er lífið mun skemmtilegra þannig. Þetta var svona 80s-90s skaup fílingur, love it og meira svona 🥳
— Jón Haukur Baldvins (@JonnieBaldvins) January 1, 2021
Besta djókið í skaupinu var um krummaskuðin tvö, sem eru svo mikil krummaskuð að ég man ekki lengur hver þau eru.
— Hermann Rúnarsson (@nomoremriceguy) December 31, 2020