Þróun
Samtals voru nýskráð 1232 ökutæki í desember sem er talsverð aukning frá því sem var í nóvember, þar sem 948 ökutæki voru nýskráð. Það er því aukning um rétt tæp 30%
Undirtegundir
Allar nýskráningar Mitsubishi bifreiða voru Outlander bílar. Þeir eru allir tengiltvinn/bensín bílar nema einn sem er skráður tvinn/bensín bíll.

Dreifingin hjá Toyota er meiri, Rav4 var atkvæðamestur í desember, en samtals voru nýskráðar 22 bifreiðar af þeirri tegund í desember, Hilux var í öðru sæti með 13 og Yaris með 10 í þriðja sæti.
Mest nýskráða Kia tegundin var Niro með 35, Sorento með 14 og Soul með 10. Tesla var fjórða mest nýskráða bíltegundin í desember. Þar er Model 3 með 71 af 77 nýskráðum Tesla bifreiðum. Model S með 3 og Model X einnig með 3.
Orkugjafar
Vistvænir orkugjafar eru talsvert umsvifameiri í desember en hinir hefðbundnu, bensín og dísel. Flestar nýskráningar, 347 voru af bílum sem eru tengiltvinn/bensín bílar. Næst flestar nýskráningar voru á bílum sem ganga engöngu fyrir rafmagni, 331. Dísel var í þriðja sæti með 256 og bensín þar á eftir með 171.
Samtals voru 748 ökutæki með vistvænum orkugjöfum nýskráð í desember. Nýskráningar hinna hefðbundnu orkugjafa voru 427. Vélarlaus ökutæki voru 57.