Breytingar á skrifstofu Akraneskaupstaðar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. janúar 2021 14:08 Kristjana, Ella María, Sædís og Harpa. Nýtt stjórnskipulag Akraneskaupstaðar var samþykkt á 1324. fundi bæjarstjórnar þann 15. desember og tók gildi þann 1. janúar. Markmið breytinganna er að auka og bæta innri og ytri þjónustu Akraneskaupstaðar, auka skilvirkni í rekstri sveitarfélagsins með upplýsingatækni, skýrari verkferlum, stjórnun og öflugu starfsumhverfi.
Meðal helstu breytinga voru þær stofnuð var ný eining sem ber heitir skrifstofa bæjarstjóra. Undir hana tilheyra eftirfarandi málaflokkar: Þjónusta og stafræn þróun, verkefnastofa, mannauðsmál, atvinnuþróun, ferðamál, markaðsmál og menningar- og safnamál. Samhliða breytingunum hefur verið gengið frá ráðningu í fjögur störf hjá Akraneskaupstað en breytingarnar fela ekki í sér fjölgun starfsmanna þar sem framangreindar breytingarnar fela í sér tilfærslu á verkefnum. Sædís Alexía Sigurmundsdóttir er skrifstofustjóri á skrifstofu bæjarstjóra. Hún gegndi áður starfi deildarstjóra á stjórnsýslu- og fjármálasviði. Sædís Alexía hefur starfað hjá Akraneskaupstað í að verða átta ár og hefur sinnt sambærilegum verkefnum á sviði þjónustu og stafrænnar þróunar ásamt atvinnu-, ferða- og markaðsmálum. Þá hefur hún stýrt þeim verkefnum ásamt fjölda annarra innan ólíkra sviða með farsælum hætti ásamt því að starfa í framkvæmdastjórn innan bæjarskrifstofunnar. Sædís Alexía er viðskiptalögfræðingur að mennt og með meistaragráðu í forystu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun. Ella María Gunnarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri á verkefnastofu. Ella María sem gegndi áður starfi forstöðumanns menningar- og safnamála hefur tekið við þeirri stöðu en hennar fyrra starf var lagt niður samhliða þessum stjórnkerfisbreytingum. Ella María hefur starfað hjá Akraneskaupstað frá árinu 2015 og sinnt verkefnum á sem falla undir menningar- og safnamál. Ella María er með meistarapróf í viðskiptafræði ásamt bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands og öðlaðist B-stig IPMA vottunar hjá Verkefnastjórnunarfélagi Íslands. Starfsreynsla Ellu Maríu er fyrst og fremst mótuð út frá verkefnastjórnun en hún starfaði fyrir Arion banka í 15 ár, þar af lengst í verkefnastjórnun. Harpa Hallsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri en slíkur hefur ekki verið starfandi hjá kaupstaðnum síðan árið 2012. Málaflokkurinn hafði frá þeim tíma verið hluti af starfi sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs. Ráðningu mannauðsstjóra lauk rétt fyrir áramót og hóf Harpa Hallsdóttir störf 7. janúar sl. Harpa lauk BA gráðu í spænsku með uppeldis- og menntunarfræði sem aukagrein. Hún lauk meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla árið 2005 og er að leggja lokahönd á viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Harpa hefur starfað hjá Kópavogsbæ frá 2011 sem mannauðsfulltrúi og mannauðsráðgjafi á stjórnsýslu- og umhverfissviði. Áður vann hún sem deildarstjóri starfsmannahalds hjá Tollstjóra og sérfræðingur hjá Skattrannsóknarstjóra ríkisins. Með skrifstofu bæjarstjóra er ætlunin að nútímavæða þjónustuferla og efla þjónustuhugsun meðal starfsfólks og innleiða þjónustumarkmið ásamt því að leysa mál með þjálfun starfsmanna í fyrstu snertingu og gegnir einingin frumkvæðishlutverki í stafrænni þróun sveitarfélagsins með það markmið að auka framleiðni og létta álagi á starfsfólk. Ætlunin er einnig ná fram betri nýtingu á mannauði svo öflugri samrekstur fáist á byggðasafni, vitasvæði og Guðlaugu. Þá er stefnt að ráðningu skjalastjóra á næstu mánuðum sem einnig mun gegna starfi persónuverndarfulltrúa. Kristjana Helga Ólafsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri fjármála. Stjórnkerfisbreytingarnar höfðu í för með sér endurskipulagningu og um leið styrkingum innan fjármáladeildar kaupstaðarins. Helstu breytingar þar voru að Steinar Adolfsson sviðsstjóri stjónsýsluog fjármálasviðs hefur tekið við auknu hlutverki innan deildarinnar þar sem starf fjármálastjóra var lagt niður og einnig hefur Kristjana Helga Ólafsdóttir verkefnastjóri innan fjármáladeildar tekið við nýrri stöðu deildarstjóra fjármála og fengið aukið hlutverk við stærstu verkefni kaupstaðarins eins og ársreikningsgerð og fjárhagsáætlun. Kristjana Helga hefur unnið hjá Akraneskaupstað í rúmlega tvö ár og hefur þar að auki víðtæka og farsæla reynslu í fjármálum sveitarfélaga. Kristjana Helga er viðskiptafræðingur að mennt og með viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu. Einnig var samþykkt að ráða inn verkefnastjóra í deildina sem myndi m.a. hafa það hlutverk að styðja við hagstæðari innkaup og greiningar og nýtast vel heildarstarfsemi kaupstaðarins. „Við förum jákvæð inn í nýtt ár og með tilhlökkun um að takast á við krefjandi og ný verkefni mörg hver. Með þessum breytingum er það okkar einlægja von að ná fram aukinni skilvirkni bæði í skipulagi og rekstri þannig að við náum að veita sem bestu mögulegu þjónustu til okkar nærsamfélags. Ég vil nota tækifærið og óska þessum fjórum öflugu konum til hamingju með nýtt starf. Það verður spennandi að starfa með þeim að eflingu á starfsemi Akraneskaupstaðar sem ég er sannfærður um að muni skila sér í enn öflugri þjónustu við íbúa og starfsmenn“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri.
Akranes Vistaskipti Mest lesið „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Atvinnulíf Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Viðskipti innlent Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Samstarf Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Leggja á 39 prósenta skatt á eignir slitabúanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Sjá meira