Viðskipti innlent

Atvinnuþátttaka aldrei verið minni en í fyrra

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Kórónuveirufaraldurinn hefur haft mikil áhrif á íslenskan vinnumarkað samkvæmt mælingum Hagstofunnar. Samkomutakmarkanir hafa til að mynda gert það að verkum að vinnustaðir á borð við krár, skemmtistaði og líkamsræktarstöðvar hafa þurft að loka í lengri eða skemmri tíma.
Kórónuveirufaraldurinn hefur haft mikil áhrif á íslenskan vinnumarkað samkvæmt mælingum Hagstofunnar. Samkomutakmarkanir hafa til að mynda gert það að verkum að vinnustaðir á borð við krár, skemmtistaði og líkamsræktarstöðvar hafa þurft að loka í lengri eða skemmri tíma. Vísir/Vilhelm

Atvinnuþátttaka fólks á aldrinum 16-74 ára hefur aldrei mælst minni en á árinu 2020. Þetta sýna mælingar í vinnumarkaðsrannsókn sem fjallað er um á vef Hagstofu Íslands í dag en mælingar á atvinnuþátttöku hófust árið 1991.

Í umfjöllun Hagstofunnar segir að áhrif kórónuveirufaraldursins á íslenskum vinnumarkaði hafi verið merkjanleg nánast allt síðasta ár.

„Ein af birtingamyndunum er að atvinnuþátttaka 16-74 ára fyrir árið í heild hefur ekki mælst minni í vinnumarkaðsrannsókninni frá því mælingar hófust árið 1991. Árið 2020 mældist atvinnuþátttaka að jafnaði 79,6% sem er í fyrsta sinn sem mælingin er undir 80%. Atvinnuþátttaka er hlutfall starfandi og atvinnulausra, það er vinnuaflsins, af mannfjölda,“ segir á vef Hagstofunnar.

Þá mældist hlutfall starfandi fólks 75,3% árið 2020 og hefur það hlutfall ekki verið lægra síðan árið 2011.

Atvinnuleysi mældist svo 5,5% að jafnaði yfir árið sem er nokkuð minna en lesa má úr tölum Vinnumálastofnunar.

„Ein ástæða þess er að fleira fólk en áður fellur utan vinnumarkaðar, það er að segja er ekki með starf, leitar ekki að starfi og/eða er ekki tilbúið til að hefja störf innan ákveðins tíma. Eftir sem áður er það án vinnu og mögulega skilgreinir það sig sjálft sem atvinnulaust. Aldrei áður hafa jafn margir verið í þessum hópi en árið 2020 eða um 53.000 manns sem er 20,4% af mannfjölda 16-74 ára,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar en lesa má nánar um málið á vef stofnunarinnar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×