„Þessi samtök eru á ákveðnum krossgötum“ Sindri Sverrisson skrifar 23. febrúar 2021 09:39 Orri Hlöðversson hefur lengi starfað fyrir Breiðablik og lék áður með liðinu upp alla flokka. Hér afhendir hann Elfari Frey Helgasyni blómvönd eftir að Elfar náði 250 leikja áfanga hjá Blikum. mynd/blikar.is „Samtökin eru ekki eitthvað útibú frá KSÍ,“ segir Orri Vignir Hlöðversson, nýr formaður Íslensks toppfótbolta. Orri var sjálfkjörinn í embættið í síðustu viku eftir að Geir Þorsteinsson dró framboð sitt til baka, ósáttur við að framboð Orra væri álitið lögmætt, en Orri kveðst alls ekki líta svo á að hann hefji sitt starf í mótbyr.
Orri er 56 ára gamall Kópavogsbúi og framkvæmdastjóri Frumherja. Hann tekur við sem formaður ÍTF, hagsmunasamtaka félaga í efstu deildum fótbolta á Íslandi, sem fulltrúi Breiðabliks. Þar er hann formaður knattspyrnudeildar eftir að hafa tengst félaginu nær alla sína ævi, fyrst sem fótboltastrákur sem spilaði með liðinu fram í meistaraflokk. „Ég er búinn að starfa hjá Breiðabliki núna meira og minna í ein 10-12 ár, sem formaður aðalstjórnar og svo formaður knattspyrnudeildar síðustu ár. Maður hellti sér út í starfið í gegnum börnin, eins og margir, og ég vil bara leggja mitt lóð á vogarskálarnar – lít á þetta sem samfélagsverkefni númer eitt, tvö og þrjú,“ segir Orri. Hann kveðst stoltur af sínu starfi hjá fjölmennustu knattspyrnudeild landsins sem telur um 1.500 iðkendur og hefur hreinlega framleitt atvinnumenn í knattspyrnu karla og kvenna. Tvö stór mál sem að glímt er við Nú er Orri tekinn við formennsku hjá ÍTF, samtökum sem fögnuðu tíu ára afmæli á dögunum og eiga að berjast fyrir hagsmunum félaganna í efstu tveimur deildum karla og kvenna á Íslandi. Sem formaður tekur hann einnig sæti í stjórn KSÍ. „Þessi samtök eru á ákveðnum krossgötum. Þau eru að þroskast og slíta barnsskónum. Núna eru tvö stór mál sem að menn glíma aðallega við. Annars vegar sjónvarpsréttarmál og hins vegar keppnisfyrirkomulagið í Pepsi Max-deild karla, og vissulega tengjast þessi mál mjög,“ segir Orri. ÍTF sér nú í fyrsta sinn um sölu á réttinum til að sýna leiki í íslenskum fótbolta og ljóst að um mikið hagsmunamál er að ræða. Á þingi KSÍ á laugardaginn verður svo tekin afstaða til þess hvernig keppnisfyrirkomulagið á að vera í efstu deild frá og með árinu 2022 en fyrir liggja fjórir kostir. „Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir nein afstaða ÍTF til keppnisfyrirkomulagsins fyrir þingið. Við erum hins vegar mjög virkir þátttakendur í umræðunni og það sem menn eru sammála um er að reyna að fækka valkostum, og brúa bilið á milli valkosta. Það eru auðvitað skiptar skoðanir innan samtakanna, eins og gefur að skilja,“ segir Orri en ÍA, Fylkir og Fram lögðu öll fram tillögu að breytingum á Íslandsmótinu. Bjartsýnn á að fá góðan samning fyrir félögin Hvað sjónvarpsréttinn varðar er málið einfalt. Orri vill fá samninga sem skila mestum tekjum fyrir aðildarfélög ÍTF. „Við erum mjög bjartsýn á að geta gert góðan samning fyrir félögin okkar,“ segir Orri. „Við getum alveg talað hreina íslensku með það að auðvitað snýst þetta um að fá sem hæst verð fyrir okkar vöru. Það hangir vissulega á hinu málinu, hvernig keppnisfyrirkomulagið verður og þannig hvaða vöru við erum að selja. Við þurfum svolítið að vita það eftir þingið á laugardaginn, en við erum mjög bjartsýnir á að ná hagstæðum samningum í ljósi þess að áhuginn á íslenska boltanum hefur aukist síðustu ár alveg gríðarlega, bæði hér heima og í útlöndum. Það kveikir von um að þetta sé orðið verðmeira en í fortíðinni.“ ÍTF ber ábyrgð á því að gera sem hagstæðastan samning um réttinn til að sýna frá leikjum í efstu deildum karla og kvenna.vísir/vilhelm Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, skrifaði pistil á Fótbolta.net í gær þar sem hann velti fyrir sér tilgangi ÍTF. Sagði hann að með því að opna dyr samtakanna fyrir úrvalsdeild kvenna og næstefstu deildum karla og kvenna, væru öll helstu félög landsins með aðild. Hvort betur væri þá ekki heima setið en af stað farið, því samtökin væru orðin að hálfgerðri deild innan KSÍ. Samtökin „auðvitað“ sjálfstæð Orri hafði ekki lesið pistilinn þegar Vísir náði tali af honum í gær en aðspurður hvort samtökin væru orðin of fjölmenn eða almenn, svaraði Orri: „Samtökin eru auðvitað bara við, og eins og við kjósum að reka þau á hverjum tímapunkti. Það er ákveðin hugmyndafræði á bakvið þau sem lifir góðu og gildu lífi. Menn geta verið sammála eða ósammála um áherslur og leiðir sem við förum á hverjum tíma en það er eitthvað sem við tæklum innan okkar raða eins og reyndir og agaðir menn.“ Hann vill alls ekki meina að samtökin séu orðin að deild innan KSÍ: „Þau eru með forskrift sem sjálfstæð, starfandi samtök sem eru í hagsmunabaráttu fyrir efstudeildarfélög karla og kvenna á Íslandi. Þau eru auðvitað sjálfstætt batterí, þó þau séu mjög háð KSÍ og tengd KSÍ. Þau eru ekki eitthvað útibú frá KSÍ, og menn þurfa ekki að fletta lengi í samþykktum og starfi samtakanna til að sjá að þau eru sjálfstæð, það er alveg klárt.“ Þjóna þessum formönnum eins vel og öðrum Eins og Vísir fjallaði um í síðustu viku ríkti ekki eining um það á aðalfundi ÍTF, að framboð Orra teldist lögmætt. Deilt var um hvort hann gæti boðið sig fram á meðan að fulltrúi frá Breiðabliki væri í stjórn, jafnvel þó að það væri með þeim forsendum að sá fulltrúi færi úr stjórn. Kosið var um lögmæti framboðsins og töldu átta félög það ólögmætt en 16 að það væri lögmætt. Geir Þorsteinsson dró framboð sitt til baka eftir að ljóst varð að fundurinn teldi framboð Orra lögmætt. Kvaðst hann ekki ætla að taka þátt í „að samþykkja þessa lögleysu“. Úr því að Geir hætti við framboð var Orri sjálfkjörinn en finnst Orra að hann taki við formennsku í mótbyr? „Ég lít alls ekki á þetta þannig. Menn voru ekki alveg sammála í aðdraganda þessa kjörs og það hafa allir rétt á sinni skoðun. Svo er þetta bara lýðræðisleg kosning þar sem að ágætur meirihluti ákveður að framboðið sé löglegt. Við það kýs mótframbjóðandi minn að draga framboð sitt til baka. Þetta er bara niðurstaða og maður er orðinn það reyndur bæði í viðskiptum og félagsstarfi að vita að stundum kemur upp staða þar sem menn eru ekki sammála. Grundvallarreglan í því er að lúta niðurstöðunni og vinna saman. Hvað mig varðar þá mun ég þjóna þessum einstaklingum og formönnum eins vel og öðrum.“
KSÍ Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Lengjudeildin Tengdar fréttir Lögmæti framboðs Orra dregið í efa Samkvæmt minnisblaði lögfræðings er framboð Orra Hlöðverssonar til formanns Íslensks toppfótbolta ólöglegt. Miðað við það virðist formannsstóllinn blasa við eina mótframbjóðanda Orra, Geir Þorsteinssyni, en ekki eru öll kurl komin til grafar. 17. febrúar 2021 14:01 Mest lesið Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Enski boltinn Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Handbolti Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron Körfubolti „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ Enski boltinn Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Enski boltinn „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Enski boltinn Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Enski boltinn Ballið búið hjá Chiefs og Mahomes meiddist á hné Sport Fleiri fréttir Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Rodgers á leið til Sádi-Arabíu Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Sjáðu klaufalegt sjálfsmark Woltemade í grannaslagnum og öll hin úr enska Amorim verður ánægður ef Mainoo ræðir við hann um lán „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Keyptu nýjan leikvang fyrir Glódísi og Bayern-konurnar Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Brasilísk samvinna færði Real lífsnauðsynlegan sigur Henderson heiðraði minningu Jota eftir fyrsta markið sitt í fjögur ár Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Mikael Egill og félögum tókst ekki að stoppa toppliðið Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin Hákon fann skotskóna í fyrsta sinn síðan í október „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Sunderland vann nágrannaslaginn fyrir norðan Glódís fékk hvíld og leiðir liðið bráðum út á nýjan heimavöll Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Eigendur Juventus vildu ekki selja og nú þurfa leikmenn að sanna sig Þjálfari Orra Steins látinn fara Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Sjá meira
Lögmæti framboðs Orra dregið í efa Samkvæmt minnisblaði lögfræðings er framboð Orra Hlöðverssonar til formanns Íslensks toppfótbolta ólöglegt. Miðað við það virðist formannsstóllinn blasa við eina mótframbjóðanda Orra, Geir Þorsteinssyni, en ekki eru öll kurl komin til grafar. 17. febrúar 2021 14:01