Tónlistin á plötunni er á margan hátt óhefðbundnari en fyrri verk Andra. Lagt var upp með að gera þægilega, kósý plötu sem hægt væri að sofna við síðdegisblundi eða já, púsla við á kvöldin.
Reyndir menn spila með
Andri var að leita eftir jözzuðum, instrumental fíling og fékk þar af leiðandi reynda menn í þeirri deild til liðs við sig. Hinn magnaði Magnús Tryggvason Elíasson sér um trommuleik og Freysteinn Gíslason um kontrabassaleik en hann sótti menntun sína í Konunglega tónlistarskólann í Haag í Hollandi. Ennfremur lék hinn margrómaði Arnljótur Sigurðsson á þverflautu.
Öll tónlistin er eftir Andra en hann spilar á Martin D-17m gítar og Kawai K300 píanó úr Tónastöðinni. Hljóðfæraskipan er semsagt mjög náttúruleg og akústísk þar sem heyra má brak í við hljóðfæra ef grannt er hlustað. Platan var tekin upp fyrri part ársins 2020 í stúdíó Vogor en Andri lagði hönd á plóg við smíði og uppsetningu hljóðversins ásamt Ólafi Jósepsyni og fleiri góðum mönnum.
Fékk hugarró og eirð
„Ég var kominn í óreglu og ákvað að skella mér í meðferð sumarið 2019, sem var auðvitað mjög góð ákvörðun. Við það myndaðist smá saman hugarró og eirð til að einbeita sér að tónlist aftur. Ég hafði komist upp á lag með að púsla mikið, ég þakti veggina með Íslandspúsl seríunni: Hraunfossar, Almannagjá, Sveinstindur, Kirkjufellsfoss, Skógarfoss og Landmannalaugar. Á meðan ég púsla er vaninn að skella vínylplötu á fóninn. Þetta er hin fínasta hugleiðsla sem ég mæli eindregið með. Þannig kom pælingin: að gera hina fullkomnu púslplötu“ – segir Andri að lokum.
Arnar Guðjónsson félagi Andra úr hljómsveitinni Leaves sá um hljóðblöndun á sinn fágaða hátt. Ljósmynd á umslagi voru í höndum Dóru Dúnu og eftirvinnslu gerði Emil Ásgrímsson. Hægt er að panta vínyl beint frá bónda á netfanginu andriasgrimsson@gmail.com.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.