Fyrstu myndir af nýjum Kia EV6 Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 10. mars 2021 07:01 Kia EV6. Kia sýndi í dag fyrstu myndirnar af nýjum rafbíl sem ber heitið EV6. Um er að ræða sportlegan jeppling sem er hreinn rafbíll og fyrsti bíllinn af nýrri kynslóð rafbíla Kia. EV6 verður frumsýndur í vor og er mikil eftirvænting eftir komu hans á markað.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Öskju. Afturljósin á Kia EV6. Þetta er fyrsti bíll Kia sem byggður er á nýjum og háþróuðum E-GMP undirvagni (Electric-Global Modular Platform) sem er sérstaklega hannaður fyrir rafbíla. Þessi nýi undirvagn verður notaður í næstu kynslóðir rafbíla hjá Kia. Hinn nýi EV6 er þróaður samkvæmt nýrri hönnunarheimspeki Kia sem einblínir á rafbíla framleiðandans. Hönnunin er djörf og framsækin í takt við þær spennandi nýjungar sem rafbílar kalla fram. Kia kynnti einnig í dag nýtt nafnakerfi á rafbíla sína. Þeir munu allir heita EV og síðan mun tölustafur fylgja á eftir. Kia EV6 í prófíl. Það er margt spennandi í gangi hjá Kia en bílaframleiðandinn kynnti nýverið nýtt vörumerki sem er einn liðurinn í umbreytingu fyrirtækisins í þá átt að gera það enn meira spennandi og framsæknara. Nýja merkið á að höfða til ört stækkandi viðskiptavinahóps Kia þar sem vinsældir rafbíla og sérsmíðaðra ökutækja eru sniðnar að þörfum notenda á mörkuðum um allan heim.
Vistvænir bílar Mest lesið Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Innlent Kári segist hafa verið rekinn vegna lygasögu Innlent Ætla að hernema Gasaströndina Erlent Segir réttarríkið standa í vegi sínum Erlent Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Erlent Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Innlent Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Innlent Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Erlent Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Erlent Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Erlent