Viðskipti innlent

Ís­lenskur snjall­hringur vekur at­hygli er­lendra fjöl­miðla

Eiður Þór Árnason skrifar
Genki tókst að koma fyrir litlum skjá og þremur tökkum á þetta litla tæki. 
Genki tókst að koma fyrir litlum skjá og þremur tökkum á þetta litla tæki.  Genki

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Genki hefur sett á markað snjallhringinn Wave for Work sem gerir fólki kleift að stýra forritum á borð við Zoom, Microsoft Teams, PowerPoint og Spotify með einföldum handahreyfingum.

Varan hefur þegar vakið athygli erlendis og verið til umfjöllunar hjá stórum tæknimiðlum á borð við Engadget, Fast Company, TechRadar og Apple Insider.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Genki. Þrír takkar eru á hringnum auk skjás sem sýnir upplýsingar á borð við hljóðstyrk eða hvort hljóðnemi sé virkur á fjarfundum. Þá er hægt að sníða hringinn að ólíkum fingrastærðum.

Um er að ræða breytta útgáfu af tónlistarhringnum Wave sem Genki setti á markað árið 2018. Tækið gerir tónlistarfólki kleift að stýra hljóði, breyta effektum og senda skipanir með handahreyfingum.

Fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu að Wave hafi selst í þúsunda tali um allan heim og tónlistarfólk eins og Daði Freyr, Imogen Heap og Jamie Lidell nýtt hann við sköpun sína. Þá kynnti Genki hringinn Halo sem notaður er til að stýra glærum og kynningum á nýjan máta í fyrra.

Fengu hugmyndina þegar faraldurinn skall á

„Það hefur lengi blundað í okkur að stækka notkunarsvið hringsins út fyrir tónlist. Þegar við byrjuðum að vinna heiman frá, í upphafi kófsins, nýttum við okkur Wave til að stýra Zoom. Við fundum strax að það gerði lífið einfaldara,“ segir Ólafur Bjarki Bogason, framkvæmdastjóri Genki, í tilkynningu.

„Wave for Work byggir á sama notendavæna vélbúnaði og Wave, en við endurhönnuðum virkni hringsins til að stýra forritum sem við notum daglega. Til dæmis er hægt að slökkva á hljóðnema á Zoom, skipta um glæru í PowerPoint eða hækka tónlist á Spotify, hvar sem er innan heimilisins. Það býður upp á aukið frelsi og möguleika sem við höfum aldrei séð áður.“

Wave for Work hefur allt að tíu metra drægni og tengist hugbúnaði sem býður notendum upp á að sérsníða virkni hans. Hringurinn styður hugbúnað á borð við Zoom, Microsoft Teams, PowerPoint, Keynote, Spotify, Photoshop og OBS og fer listi forrita vaxandi.

Genki hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar, til að mynda Hönnunarverðlaun Íslands árið 2019 fyrir Wave-hringinn. Hluthafar í Genki eru Tennin, Davíð Helgason, Jón von Tetzchner og Nordic Web Ventures.


Tengdar fréttir

Tónlist, tækni og hönnun rennur saman í eitt

Genki Instruments er íslenskur tónlistartæknisproti sem hefur það að markmiði að gera tækni aðgengilegri og náttúrulegri fyrir tónlistarmenn. Fyrsta varan er tilbúin og er væntanleg á markað snemma í næsta mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×