Tækninýjungar gætu umbylt mannúðaraðstoð í heiminum Heimsljós 20. apríl 2021 13:01 UNICEF/UN036675/Sharma Gervigreind gæti auðveldað greiningu og túlkun flókinna gagna til að bæta áætlanir og ákvarðanatöku í mannúðarastarfi. Nýjungar í tækni hafa alla burði til þess að umbylta mannúðaraðstoð í heiminum og skapa tækifæri til skjótari viðbragða, hraðari og skilvirkari aðgerða. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá OCHA, Samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum. Skýrslan ber yfirskriftina „Frá stafrænum fyrirheitum til framlínustarfa“ (From Digital Promise to Frontline Practice). Þar segir að unnt verði með gervigreind að auðvelda greiningu og túlka flókin gögn til að bæta áætlanir og ákvarðanatöku í mannúðarastarfi. Bent er á að þeir sem lenda í mannúðarkrísum geti nýtt sér farsímaöpp, snjallmenni (chatbots) og samfélagsmiðla til að lýsa aðstæðum sínum og fengið endurgjöf. Enn fremur segir að COVID-19 heimsfaraldurinn hafi sýnt að margvísleg starfsemi hafi á einni nóttu verið flutt yfir í stafrænt umhverfi. Í skýrslunni er hins vegar einnig undirstrikað að slíkum kostum fylgi flóknar áskoranir og áhætta. Til dæmis geti ófullnægjandi gagnavernd og persónuvernd valdið tjóni og aukið óöryggi, aðgengi að tækni eða stafrænt læsi geti aukið á veikleika og kynjamun, svo dæmi séu nefnd. Skýrsluhöfundar segja tæknina sjálfa og innleiðingu hennar ekki breyta hugmyndafræði mannúðar, mikilvægast sé að tryggja að hún verndi umfram allt mannlíf og reisn. Skýrslan verður formlega kynnt á stafrænum fundi á vegum OCHA á fimmtudag í næstu viku. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent