Með sigri hefði Manchester City gulltryggt efsta sætið í deildinni en þessi lið tryggðu sér farseðil í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í vikunni.
Raheem Sterling kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik og sá til þess að liðið færi með forystu í leikhléið.
Chelsea tókst að koma til baka í síðari hálfleik með mörkum Hakim Ziyech og Marcos Alonso en spænski bakvörðurinn gerði sigurmark leiksins í uppbótartíma venjulegs leiktíma.
Chelsea komið í sterka stöðu í 3.sæti deildarinnar og úrslitin þýða jafnframt að Man Utd á enn veika von á Englandsmeistaratitlinum.