Sóknarfæri í loftslagsmálum er yfirskrift ársfundarins og hefst útsending klukkan 14, en fylgjast má með fundinum að neðan.
Innlendur kostnaður álvera skiptist í raforkukaup, sem áætluð eru um 45 milljarðar, kaup á innlendum vörum og þjónustu upp á 24,5 milljarða, laun og launatengd gjöld 20,5 milljarða, opinber gjöld 3 milljarða og loks rúmar 100 milljónir í styrki til samfélagsmála.
Á ársfundinum ræðir Gunnar Guðlaugsson stjórnarformaður Samáls og forstjóri Norðuráls stöðu og horfur í áliðnaði og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra flytur ávarp.
Í pallborði um sóknarfæri í umhverfismálum verða Guðrún Þóra Magnúsdóttir, leiðtogi umhverfismála og rannsóknastofu hjá Isal, Steinunn Dögg Steinsen framkvæmdastjóri umhverfis- og öryggissviðs Norðuráls og Fiona Solomon framkvæmdastjóri ASI, Aluminium Stewardship Initiative.
Í pallborði um samkeppnishæfni íslenskrar álframleiðslu verða Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Guðrún Sævarsdóttir, dósent í verkfræði við Háskólann í Reykjavík, Bjarni Már Gylfason, leiðtogi samfélagsmála og samskipta hjá Isal og Eoin Dinsmore, yfirmaður greiningarsviðs áliðnaðar hjá CRU.
Nýr tónheimur opnast með alúfóni, nýju hljóðfæri Sinfóníunnar, og innlit verður í framleiðslu á hringrásarvænum vörum hönnunarfyrirtækisins Fólks í Reykjavík.
Fundarstjóri er Dagmar Ýr Stefánsdóttir, yfirmaður samskipta- og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaáli, og pallborðum stýrir Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls.