Starfsmenn Alvotech safna fyrir Indland Heimsljós 27. maí 2021 10:56 Starfsmenn Alvotech safna fyrir Indland UNICEF Starfsmenn Alvotech hafa hrundið af stað fjáröflun innan fyrirtækisins til að bregðast við skelfilegum afleiðingum COVID-19 á Indlandi. „Ástandið á Indlandi af völdum COVID-19 lætur engan ósnortinn. Málið stendur okkur hjá Alvotech nærri þar sem fjöldi Indverja hefur flust búferlum til Íslands til að starfa hjá okkur. Við viljum sýna okkar fólki og indversku þjóðinni stuðning í verki og höfum því sett af stað söfnun innan fyrirtækisins, sem fyrirtækið mun mæta með öflugu mótframlagi. Við þökkum UNICEF fyrir þeirra framlag í baráttunni gegn COVID-19,“ segir Róbert Wessman, stjórnarformaður Alvotech. UNICEF greinir frá því í frétt að starfsmenn Alvotech hafi hrundið af stað fjáröflun innan fyrirtækisins til að bregðast við skelfilegum afleiðingum COVID-19 á Indlandi. Hjá fyrirtækinu starfar fjöldi manns frá Indlandi og starfsmenn vildu því sýna samhug í verki og styðja neyðaraðgerðir UNICEF þar í landi. „Við erum meira en 100 manns frá Indlandi hér á landi sem tengjumst Alvotech, sem starfsmenn eða fjölskyldumeðlimir starfsmanna. Ástandið á Indlandi núna er verulega slæmt og við erum að ganga í gegnum erfiða tíma þar sem sumir samstarfsmenn hafa misst fjölskyldumeðlimi og ástvini vegna COVID-19. Við erum við djúpt snortin af umhyggju stjórnenda og samstarfsmanna okkar,“ segir Kathir Narayanan, framleiðslustjóri hjá Alvotech og einn starfsmannanna sem stendur að fjáröfluninni. Kathir segir að heilbrigðiskerfið ráði á engan hátt við faraldurinn og að mikill skortur sé á súrefni og gjörgæslurýmum fyrir alvarlega veika. Indland er eitt fjölmennasta ríki heims og útbreiðsla COVID-19 hefur verið stjórnlaus síðan önnur bylgja faraldursins hófst þar í febrúar. Þúsundir láta lífið á degi hverjum og spítalar eru yfirfullir og anna ekki eftirspurn. Veiran breiðist nú einnig hratt um nærliggjandi lönd þar sem heilbrigðiskerfin hafa enga burði til að sinna þeim fjölda sjúklinga sem veikjast. UNICEF sendir út neyðarákall „Hröð útbreiðsla COVID-19 í Suður-Asíu er áskorun sem allur heimurinn þarf að bregðast við. Í Suður-Asíu búa tveir milljarðar manns og á hverri sekúndu greinist þar nýtt smit. Á 17 sekúndna frestir deyr þar einhver af völdum sjúkdómsins. Indland hefur orðið mjög illa úti og ástandið hefur einnig versnað mikið í Nepal og Srí Lanka. Nú er hætta á að útbreiðslan verði einnig stjórnlaus í Bangaless, Afghanistan, Pakistan og Bútan,“ segir í frétt UNICEF. Þar segir enn fremur að vart þurfi að fjölyrða um hversu skelfilegar afleiðingar ástandið það hafi fyrir börn sem missa foreldra og fjölskyldumeðlimi, upplifa mikinn ótta og kvíða og komast ekki undir læknishendur ef þau veikjast. Óttast sé að á Indlandi verði flest dauðsföll barna undir fimm ára aldri vegna raskana á heilbrigðisþjónustu ef ekki verði brugðist tafarlaust við. UNICEF og samstarfsaðilar vinna nú í kappi við tímann við að tryggja öryggi barna og fjölskyldna þeirra. UNICEF hefur þegar útvegað nauðsynleg sjúkragögn, súrefnisbirgðir, milljónir andlitsgríma og skimunarbúnað. Auk þess er áhersla lögð á fræðslu um smitvarnir og að styðja uppbyggingu heilbrigðiskerfisins til að hægt sé að sinna börnum og mæðrum sem þurfa nauðsynlega á mikilvægu ungbarna- og mæðraeftirliti að halda. UNICEF styður einnig stjórnvöld við að skipuleggja bólusetningaáætlanir og tryggja þannig að bóluefni við COVID-19 verði dreift jafnt til allra íbúa landsins. Brýnna aðgerða er þörf og kallar UNICEF eftir auknum stuðningi til að útvega og koma lífsnauðsynlegum hjálpargögnum til íbúa Indlands. Þetta er áskorun sem allur heimurinn þarf að bregðast við því fljótt getur nýtt afbrigði veirunnar og afleiðingar þess breiðst út. Hægt er að styðja neyðaraðgerðir UNICEF með frjálsu framlagi hér. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Indland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Innlent Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Innlent Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Erlent Vill losna við tálma úr vegi sínum Erlent Segir Heimildarmenn hafa njósnað um son hans Innlent „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ Innlent Allt að tuttugu stiga hiti Veður
„
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Indland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Innlent Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Innlent Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Erlent Vill losna við tálma úr vegi sínum Erlent Segir Heimildarmenn hafa njósnað um son hans Innlent „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ Innlent Allt að tuttugu stiga hiti Veður