Viðskipti innlent

Um tvær milljónir farþega og tuttugu flugfélög

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Guðmundur Daði Rúnarsson er framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia.
Guðmundur Daði Rúnarsson er framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia. Vísir/Arnar

Isavia reiknar með að tvær milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll í ár sem er minna en vonast var eftir. Um tuttugu flugfélög hafa boðað komu sína í sumar og er búist við að fjöldi brottfara á viku rúmlega tvöfaldist milli ára.

Á Keflavíkurflugvelli lítur sumarið sem nú er handan við hornið talsvert betur út en sumarið í fyrra. Brottfarir í júní í fyrra voru um sjötíu á viku en reiknað er með að þær verði hundrað og fjörutíu til hundrað og sextíu frá miðjum júní, samkvæmt tölum frá Isavia. 

Þá er búist við um tuttugu flugfélögum á vellinum; flug er þegar hafið hjá félögum á borð við Icelandair, Lufthansa og Wizz air. Þá er flug dagsett en ekki hafið hjá þremur; Play, SAS og United Airlines, og byrjað að selja ferðir hjá félögum eins og British Airways, Finnair og EasyJet.

Þá er búist við tæplega tveimur milljónum farþega um flugvöllinn í ár, sem er nokkuð meira en í fyrra - en bliknar í samanburði við 7,3 milljónir árið 2019 og 9,8 milljónir árið 2018.

„Frjáls för og fyrirsjáanleiki er lykilatriði til að umferð fari að aukast þannig að þegar árið byrjaði vorum við kannski með aðeins hærri væntingar, ekkert mikið hærri. Þannig að við eigum kannski tvö, þrjú fjögur ár í að komast upp í sambærilegar tölur eða við allavega vonum það,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia.

Umferð um völlinn hefur aukist jafnt og þétt síðustu vikur. Þannig kom til dæmis dagleg flugáætlun Delta frá þremur borgum í Bandaríkjunum til framkvæmda í gærmorgun með komu fyrstu þotunnar frá Minneapolis.

„Þannig að þegar við horfum á framtíðina erum við bara mjög bjartir á hana en þetta mun taka smá tíma,“ segir Guðmundur Daði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×