Tæplega 300 milljarðar króna söfnuðust á áheitaráðstefnu Heimsljós 3. júní 2021 11:02 Mögulega verður unnt að bólusetja um 30 prósent fullorðinna í þeim rúmlega 90 þjóðríkjum sem COVAX samstarfið nær til. „Andspænis heimsfaraldri getum við ekki útilokað og vanrækt ákveðna hópa fólks þegar kemur að bólusetningum. Sérhvert land verður að gera sitt til þess að leiðrétta ójafnvægi í aðgengi að bóluefni gegn COVID-19. Í þeirri alþjóðlegu viðleitni að tryggja sanngjarnan og jafnan aðgang að bóluefni fyrir alla er lykilatriðið að tryggja fjármagn,“ er haft eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í frétt alþjóðlega bólusetningarbandalagsins Gavi eftir áheitaráðstefnu í gær – One World Protected. Á ráðstefnunni var tilkynnt um 500 milljóna króna viðbótarframlag frá Íslandi til alþjóðlegs samstarfs um bættan aðgang að bóluefnum við COVID-19 (COVAX). Ísland hefur nú varið rúmum milljarði króna til að bæta aðgengi þróunarríkja að bóluefnum gegn COVID-19. Á áheitaráðstefnunni, sem fór fram gegnum fjarfundabúnað, söfnuðust 2,4 milljarðar bandarískra dala, tæplega 300 milljarðar íslenskra króna, frá tæplega 40 framlagsríkjum, einkafyrirtækjum og sjóðum. Framlögin gera Gavi kleift að tryggja 1,8 milljarða skammta af COVID-19 bóluefnum til lág- og millitekjuríkja gegnum COVAX samstarfið. Samkvæmt frétt Gavi er líklegt að unnt verði að bólusetja um 30 prósent fullorðinna í þeim rúmlega 90 þjóðríkjum sem COVAX samstarfið nær til. „Að binda enda á COVID-19 heimsfaraldurinn er mesta áskorun okkar tíma – og enginn vinnur keppnina fyrr en allir vinna," er haft eftir Seth Berkley forstjóra Gavi. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Mest lesið Haft höggbor beint fyrir utan í hálft ár og kominn með nóg Innlent Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Erlent „Brotamenn eru nú ekki oft miklir borgunarmenn“ Innlent Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Erlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Erlent Heimila gjaldtöku vegna fjarheilbrigðisþjónustu og útkalls án flutnings Innlent Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Erlent
„
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Mest lesið Haft höggbor beint fyrir utan í hálft ár og kominn með nóg Innlent Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Erlent „Brotamenn eru nú ekki oft miklir borgunarmenn“ Innlent Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Erlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Erlent Heimila gjaldtöku vegna fjarheilbrigðisþjónustu og útkalls án flutnings Innlent Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Erlent