Frítt er inn fyrir fullorðna í fylgd með börnum. Á dagskránni eru meðal annars Leikhópurinn Lotta, söngkonan Bríet, krakkakarókí, sögustund, Æskusirkus, Blaðrarinn, afródans, fuglasmiðja og öll dásamlega stemmingin sem Árbæjarsafn býður upp á. Hér fyrir neðan má sjá dagskrá hátíðarinnar, sem er þó birt með fyrirvara um breytingar.
Laugardagur 12. júní
- 10.15–10:45 Fjölskyldujóga Landakot
- 11:00-16:00 Bókaskiptimarkaður Líkn
- 11:00-12:00 Blaðrarinn, blöðrusmiðja – skráning á staðnum Landakot
- 13:00-15:00 Þykjó, skapandi textílsmiðja - skráning á staðnum - Kornhús
- 11:00-13:00 Járnbrautin í Reykjavík
- 12:00-13:00 Blaðrarinn, blöðrusmiðja - skráning á staðnum Landakot
- 12:45-13:45 Ævintýraleg sögustund með Bergrúnu Írisi Lækjargata
- 13:00-14:20 Æskusirkus, sirkussýning og smiðja
- 13:45-14:45 Ævintýraleg sögustund með Bergrúnu Írisi Lækjargata
- 14:00-15:00 Danssýning frá Dans Brynju Péturs Landakot
- 15:00-15:40 Fjölskylduafró með Söndru og Mamadí Landakot
- 15:30-16:30 Tónar unga fólksins, tónleikar Lækjargata

Sunnudagur 13. júní
- 10.00–11:00 Fjölskyldujóga Landakot
- 10:00-16:00 Bókaskiptimarkaður Líkn
- 11:00-13:00 Járnbrautin í Reykjavík
- 11:00-12:30 Flugdrekasmiðja, skráning á staðnum
- 12:00-13:00 Fuglasmiðja Ýrúarí - skráning á staðnum Lækjargata
- 13:00-13:30 Leikhópurinn Lotta – úti á túni
- 13:00-15:00 Þykjó - skapandi textílsmiðja - skráning á staðnum Kornhús
- 14:00-15:00 Fuglasmiðja Ýrúarí – skráning á staðnum Lækjargata
- 13:30-14:00 Danssýning frá Dans Brynju Péturs
- 14:00-15:00 Krakkakarókí - Landakot
- 15:00-15:30 Bríet syngur nokkur lög
- 15:30-16:00 Allskonar skemmtilegt
„Handverk í húsunum, heitar lummur, og ævintýri á hverju strái. Við hvetjum fólk til að taka strætó, hjóla eða ganga – bílastæði af skornum skammti,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lag Barnamenningarhátíðarinnar í ár. Höfundar lags og texta: Bríet Ísis Elfar og Pálmi Ragnar Ásgeirsson.
Fljúgandi furðuverur
Nei hæ - þú hér
Ég er með nokkrar spurningar
og þú og ég
skulum saman finna svar
Hvað er það sem þig skiptir máli
fjölskylda, flokka plast og ræða heimsmálin
Nei hæ - þú hér
ég er með nokkrar spurningar
Því heimurinn og geimurinn er furðulegur
Afhverju er himininn blár?
Við erum milljón fljúgandi furðuverur
svo við skulum bara vera við sjálf.
Upp með hendur og öskrum hátt
að við ætlum bara að vera við sjálf
Upp með hendur og öskrum hátt
að við ætlum bara að vera við sjálf
Kannski get ég verið sjóræningi
og sigli um á rosa rosa stóru skipi
Lífið það er lotterí og tívolí
þar sem við leikum okkur og við borðum nammi frítt
Nei hæ - þú hér
ég er með nokkrar spurningar
og þú og ég – skulum saman finna svar
Því heimurinn og geimurinn er furðulegur
Afhverju er himininn blár?
Við erum milljón fljúgandi furðuverur
svo við skulum bara vera við sjálf
Upp með hendur og öskrum hátt
að við ætlum bara að vera við sjálf
Því heimurinn og geimurinn er furðulegur
Afhverju er himininn blár?
Við erum milljón fljúgandi furðuverur
svo við ætlum bara vera við sjálf
Upp með hendur og öskrum hátt
að við ætlum bara að vera við sjálf