Virgil van Dijk gæti snúið aftur á fimmtudaginn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. júlí 2021 19:30 Virgil van Dijk meiddist í nágrannaslag Liverpool og Everton í október á seinasta ári. John Powell/Liverpool FC via Getty Images Virgil van Dijk, miðvörður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, gæti snúið aftur á knattspyrnuvöllinn næsta fimmtudag þegar að liðið mætir Herthu Berlín í æfingaleik. Van Dijk hefur verið frá vegna meiðsla í níu mánuði.
Van Dijk sleit krossband síðastliðinn október í leik gegn Everton og hefur ekkert leikið síðan. Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, hafði áður sagt að leikurinn gegn þýska liðinu seinna í vikunni kæmi líklega of snemma og að ólíklegt væri að van Dijk gæti tekið þátt í honum. Nú virðist þó vera annað hljóð í Klopp, en hollenski varnarmaðurinn hefur staðist öll próf sem læknateymi félagsins hefur lagt fyrir hann að undanförnu. Hann hefur jafnt og þétt aukið álagið við æfingar sínar og er nú að komast á þann stað að hann gæti spilað nokkrar mínútur á fimmtudaginn. Klopp hefur ekki viljað taka neinar áhættur í bataferli van Dijk, en í samtali við opinbera heimasíðu Liverpool sagði hann að Hollendingurinn liti vel út og að þeir myndu sjá til. „Ég vona það, en ég er ekki viss. Það er möguleiki að hann geti spilað nokkrar mínútur,“ sagði Klopp. „Hann lítur vel út á æfingum og kannski getur hann komið inn af bekknum. Við þurfum að ræða þetta betur, en hann lítur út fyrir að vera tilbúinn. Við sjáum til.“ Joe Gomez hefur einnig verið lengi frá vegna meiðsla, en Klopp segir að einnig sé stutt í endurkomu hans. „Ef Virgil getur spilað 20 mínútur þá ætti Joe að geta það í næsta leik á eftir. Við sjáum til. Þeir líta báðir mjög vel út á æfingum,“ sagði Klopp að lokum.
Enski boltinn Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Fótbolti Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið Golf Fleiri fréttir Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Sjá meira