Hallur er söngvari í hljómsveitinni Spacebreaker sem gefur nú út sína fyrstu plötu, Blast, en platan er EP plata og að sögn Halls er hún stutt en kröftug.
Okkur langaði til að reyna að fókusa á að það væri gaman að hlusta. Að fólk gæti sungið með og verið í stuði.
Ásamt Halli skipa hljómsveitina þeir Helgi Björnsson, Gylfi Andrésson og Tumi Steinsson.
Fyrsta lagið sem þeir senda frá sér heitir Bad News en tónlistarmyndband við lagið er væntanlegt á næstunni.
„Við erum æskuvinir, gengum í sömu skóla og tónlistarskóla og spiluðum saman sem unglingar. Svo fyrir ári síðan datt okkur í hug að byrja aftur og höfum ekki getað hætt síðan,“ segir Hallur en þeir félagar eiga það einnig sameiginlegt að aðhyllast sömu tónlistarstefnur.
„Allt frá Led Zeppelin yfir í Mastodon, þó svo að það sé ekki endilega innblástur tónlistarinnar. Tónlistin er bara það sem verður til þegar við komum saman, án þess að spá neitt sérstaklega í hvað aðrir hafa gert,“ segir Hallur að lokum.