Þrenna Lacasse skaut Benfica áfram en Þórdís úr leik | Öll úrslit kvöldsins Valur Páll Eiríksson skrifar 9. september 2021 20:00 Cloé Lacasse skoraði þrennu fyrir Benfica er liðið fór í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Mynd/Instagram/cloe_lacasse Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir og stöllur hennar í Apollon Limassol frá Kýpur féllu úr keppni í Meistaradeild Evrópu eftir 3-1 tap fyrir Kharkiv frá Úkraínu í kvöld. Ljóst er hvaða lið fara í riðlakeppnina.
Apollon hafði tapað fyrri leiknum 2-1 á heimavelli og þurftu því sigur er þær sóttu úkraínska liðið heim. Þórdís Hrönn var í byrjunarliði Apollon sem var lent 2-0 undir eftir aðeins 20 mínútna leik. Kharkiv komst í 3-0 á 62. mínútu áður en sjálfsmark liðsins veitti Apollon veika von á 66. mínútu. Þórdísi var skipt af velli skömmu eftir sjálfsmarkið í stöðunni 3-1 en mörkin urðu ekki fleiri. Kharkiv vann 3-1, einvígið samanlagt 5-2 og er því komið í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Þórdís Hrönn með boltann í leik með KR sumarið 2020.Vísir/Hulda Margrét Cloé Lacasse, fyrrum framherji ÍBV, skoraði þrennu fyrir Benfica frá Portúgal sem vann öruggan 4-0 heimasigur á Twente frá Hollandi í Lissabon í kvöld. Benfica vann einvígið 5-1 og er því komið áfram. Hollenska markamaskínan Vivianne Miedema skoraði þá þrennu fyrir Arsenal sem vann 4-0 útisigur á Slavia Prag til að tryggja sæti sitt í riðlakeppninni eftir 7-0 samanlagðan sigur í einvígi liðanna. Juventus verður einnig þar eftir 1-0 sigur á Vllaznia frá Albaníu í Tórínó. Hin tékkneska Andrea Stasstova skoraði eina mark leiksins en Juventus vann 2-0 samanlagt. Þá vann Breiðablik 3-0 heimsigur á Króatíumeisturum Osijek til að tryggja sitt sæti í riðlakeppninni.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Stundum þarf maður heppni“ Enski boltinn Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Fótbolti Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Enski boltinn Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Körfubolti Fleiri fréttir Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Tómas Bent og félagar með sex stiga forystu á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Evrópumeistararnir í vandræðum með botnliðið Raphinha reddaði málunum fyrir Börsunga Brynjólfur með langþráð mark Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Cecilía fagnaði stórsigri gegn erkifjendunum Vigdís Lilja lét toppsætið af hendi Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Katla í markaskónum og Ingibjörg hélt hreinu Stöngin inn hjá Ásdísi skilaði sigri Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Þjálfari meistaranna á hálum ís Sjá meira