Þess má til gamans geta að lið Aftureldingar er það eina sem fékk að snúa aftur úr fyrri seríu. Áhorfendur fengu að kjósa eitt lið sem myndi snúa aftur og má því segja að þeir Steindi og Dóri hafi skipað lið fólksins.
Staðan var 23-20 fyrir Fylki þegar farið var í spurningaliðinn Þrjú hint. Þar fékk Afturelding tækifæri til þess að jafna stöðuna og Fylkir jafnframt tækifæri til þess að tryggja sér sigur. Hér var því um æsispennandi spurningu að ræða.
Spurt var um fyrirbæri. Fyrsta vísbending hljóðaði svo að maður að nafni Paul Vasquez hafi tekið myndband af fyrirbærinu á jörð sinni í Kaliforníu. Myndbandinu deildi hann á YouTube árið 2010.
Dóri DNA hringdi bjöllunni fyrir hönd Aftureldingar og giskaði á að fyrirbærið væri stórfótur. Það var hins vegar ekki rétt og var Steindi Jr. ekki par sáttur við liðsfélaga sinn.
Næsta vísbending var sú að myndbandið hafi orðið „viral“ og í dag hafi um 50 milljónir manns horft á það. Fyrirbærið væri hins vegar ekki ástæða vinsældanna heldur viðbrögð Vasquez. Hann fékk mikla athygli og heimsótti meðal annars Ísland þar sem hann gerðist sérstakur verndari Menntaskólans við Hraðbraut.
Ástrós hringdi þá bjöllunni og giskaði á að fyrirbærið væri regnbogi. Það reyndist rétt og þar með tryggði hún Fylki sigur í einvíginu og sæti í 8-liða úrslitum Kviss.