Að sögn ráðgjafafyrirtækisins er áframhaldandi efnahagsbati í gangi og ber að líta til væntanlegs stóraukins loðnuafla á komandi vertíð.
Leiðandi hagvísirinn (e. Composite Leading Indicator) er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif á Íslandi að sex mánuðum liðnum. Fimm undirliðir af sex hækka frá því í ágúst en stærsta framlag til hækkunar er vegna fjölgunar ferðamanna og aukins vöruinnflutnings.
Þrátt fyrir sterkar jákvæðar vísbendingar er óvissa áfram sögð vera uppi um þróun ferðaþjónustunnar og framgang kórónuveirufaraldursins. Þá er óvissa um framvindu í öðrum þeim atvinnugreinum sem hafa vaxið mest síðastliðinn misseri.

Þróun á vísitölu aflamagns er einn af undirþáttum leiðandi hagvísisins en nýleg úthlutun aflamarks í loðnu gefur væntingar um að komandi vertíð verði sú stærsta í tæp 20 ár.
Raungerist væntingar um stóraukinn loðnuafla má búast við að þessi undirliður hagvísisins verði leiðandi í vetur og vegi þannig á móti minni vexti í kortaveltu innanlands.
Aflamagn eini undirþátturinn sem lækkar milli ára
Leiðandi hagvísir Analytica tekur gildið 103,6 í september og á sú tala á að gefa vísbendingu um framleiðslu sex mánuðum síðar, það er í mars 2022. Hagvísirinn tekur gildið 100 þegar búist er við að landsframleiðsla sé í takt við langtímaleitni.
Leiðandi hagvísir Analytica er samansettur úr sex undirþáttum. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hlutabréfa, innflutning og væntingavísitölu Gallup. Í september hækka fimm undirþættir frá fyrra ári og eru það þeir sömu sem hækka frá í ágúst síðastliðnum.
Aflamagn er sá eini sem lækkar milli ára og ber vott um að undanfarna mánuði hafi þar verið lítils háttar samdráttur, meðal annars í framhaldi af minna aflamarki annarra tegunda.