Fyrsta breiðskífa Kig & Husk er komin út Ritstjórn Albúmm.is skrifar 14. nóvember 2021 12:31 Fyrsta breiðskífa Kig & Husk sem er skipuð Frank Hall (Ske) og Höskuldi Ólafssyni (Quarashi, Ske), kemur út í dag 11. nóvember. Platan nefnist Kill the Moon og inniheldur 10 frumsamin lög. Fyrsta breiðskífa Kig & Husk sem er skipuð Frank Hall (Ske) og Höskuldi Ólafssyni (Quarashi, Ske), kemur út í dag 11. nóvember. Platan nefnist Kill the Moon og inniheldur 10 frumsamin lög. Fyrsta smáskífa plötunnar „So Long Holly“ kom út í júní fyrr á þessu ári og hlaut frábærar viðtökur en önnur smáskífa plötunnar „Aha“ kemur einnig út í dag auk myndbands á YouTube. Tónlist Kig & Husk hefur verið lýst sem poppuðu art-rokki þar sem hefbundið tónlistarform er þanið út og óhljóðum stillt upp á móti melódískum lag- og sönglinum. Hljóðfæraleikur, söngur, forritun, útsetningar og hljóðblöndun er í höndum Kig & Husk en eftirtaldir hljóðfæraleikarar lögðu einnig hönd á plóg: Kjartan Guðnason (trommur), Paul Maguire (trommur), Hallgrímur Jón Hallgrímsson (trommur), Óttar Sæmundsen (bassi), Pétur Ben (gítar). Frank Hall nam tón- og myndlist við The Royal Conservatory og The Royal Academy í Hollandi og útskrifaðist þaðan með MA gráðu árið 2006. Frank hefur samið tónlist við fimm kvikmyndir, Svartur á leik, Julia, Afinn, Ég man þig og Albanian Gangster. Nú nýverið gerði hann tónlist fyrir aðra þáttaröðina af Stellu Blómkvist sem frumsýnd var í haust. Hann hlaut tilnefningu til Eddunnar fyrir Svartur á leik, hlaut verðlaun fyrir bestu frumsömdu tónlist fyrir Julia á kvikmyndahátíðinni Screamfest í Los Angeles. Hann var einnig tilnefndur fyrir tónlist ársins í Leikhús- og kvikmyndatónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2018 fyrir tónlistina við kvikmyndina Ég man þig. Frank er meðlimur í hljómsveitunum Skárren ekkert og Ske og þær sveitir hafa gefið út talsvert af tónlist. Frank hefur einnig unnið tónlist og hljóðmynd fyrir fjölda leiksýninga, hvort sem er einn sín liðs eða í samstarfi við aðra. Höskuldur Ólafsson hefur starfað með hinum ýmsu hljómsveitum komið að leiksýningum og kvikmyndum og gefið út hljómplötur með bæði Ske og Quarashi þ.á.m. hjá Sony Columbia Records árið 2002 (Quarashi) sem var dreift af EMI Publishing um allan heim. Platan seldist í fleiri en 500.000 eintökum og hljómsveitin kom fram á tónleikum og tónleikahátíðum í N-Ameríku, Evrópu, Japan og Ástralíu. Höskuldur Ólafsson lauk prófi í íslensku- og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 2004 og nokkrum árum síðar meistaraprófi í listspeki frá University of East Anglia (UEA) í Englandi, auk rannsóknar-meistaragráðu í heimspeki frá sama háskóla ári síðar. Kigandhusk.com Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Tónlist Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Menning
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Tónlist Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Menning