Hringrás & HP Gámar kolefnisbinda starfsemina Hringrás og HP Gámar 23. nóvember 2021 11:01 Samningurinn mun koma til með að kolefnisbinda alla starfsemi bifreiða- og vélarflota Hringrásar og HP Gáma.
Þann 19. nóvember skrifuðum við undir skemmtilegan og mikilvægan samning við Súrefni íslenska kolefnisjöfnun! Eins og flestir Íslendingar erum við hjá Hringrás mjög meðvituð um mikilvægi þess að bera ábyrgð á eigin kolefnisspori og þess að leggja sitt að mörkum til að koma í veg fyrir frekari kolefnislosun og hamfarahlýnun. Í yfir 20 ár höfum við þjónustað okkar viðskiptavini við flokkun á úrgangi og endurvinnslu. En við viljum gera meira. Út frá okkar græna bókhaldi sem endurskoðað var af VSÓ ráðgjöf unnum við náið með Súrefni til að finna leiðir til að draga úr okkar kolefnisfótspori. Við skrifuðum undir 5 ára samning við Súrefni sem munu koma til með að kolefnisbinda alla starfsemi okkar bifreiða- og vélarflota. Fyrir starfsemi 2020 munum við gróðursetja 15.000 tré og hlökkum til að sjá þau vaxa og dafna í Hringrásarskóginum. Hann mun kom til með að vera við Símonarskóg, vestan við Markarfljót á suðurlandi og mun bæta land- og loftgæði ásamt því skapa störf á svæðinu við framkvæmdir og umhirðu svæðisins. Ennfremur mun svæðið geta nýst sem útivistarsvæði til framtíðar ásamt því að græða landið og losar um leið umhverfið við lúpínugróður sem er þar á svæðinu núna. Súrefni er íslenskt fyrirtæki sem gerir öllum kleift að taka ábyrgð á eigin kolefnisfótspori með kolefnisbindingu í skógrækt og markmið þeirra er að öll þeirra kolefnisjöfnunarskógrækt verði vottuð með alþjóðlegri vottun. Nánar um Súrefni hér.
Loftslagsmál Umhverfismál Mest lesið Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Viðskipti innlent Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira