Viðskipti innlent

Hollendingar aftur byrjaðir að spóka sig á Akureyri

Eiður Þór Árnason skrifar
Bæjaryfirvöld og ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi hafa lengi talað fyrir auknu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll.
Bæjaryfirvöld og ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi hafa lengi talað fyrir auknu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll. Vísir/Tryggvi

Flugvél á vegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel lenti á Akureyrarflugvelli í morgun. Vélin kom frá Amsterdam en um er að ræða fyrstu ferð vetrarins. Leiguflug ferðaskrifstofunnar milli höfuðborgar Hollands og Akureyrar hefur legið niðri frá því að heimsfaraldurinn skall á.

Flogið verður á föstudögum og mánudögum næstu fimm vikurnar og annast flugfélagið Transavia flugið. Þá stendur til að vera með vikulegt flug næsta sumar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands sem segir um að ræða mikilvæga innspýtingu fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Um leið fái Norðlendingar tækifæri til að fljúga erlendis beint frá Akureyrarflugvelli.

Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri Flugklasans Air 66N, segir þetta mikinn gleðidag.

„Við fögnum því mjög að Voigt Travel sé aftur kleift að bjóða upp á leiguflug beint til Norðurlands. Heimsfaraldurinn stöðvaði starfsemina tímabundið, en nú eru aftur forsendur til ferðalaga. Samstarfið við Voigt Travel hefur frá upphafi verið mjög gott og frábært að sjá leiguflugið fara aftur af stað. Voigt Travel hefur mikla trú á Norðurlandi sem áfangastað og vill halda áfram að fjölga hér gestum á þeirra vegum.“

Jákvæðar fréttir eftir langvarandi heimsfaraldur

Voigt Travel hóf leiguflug til Akureyrar sumarið 2019 og var einnig með flugferðir í febrúar og mars 2020. Strax eftir að því flugi lauk skall heimsfaraldurinn á og hafa flugferðir á vegum ferðaskrifstofunnar legið niðri síðan.

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, segir það gríðarlega mikilvægt fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi að flugferðirnar séu aftur farnar af stað.

„Bæði fyrir fyrirtækin sem hafa beinan ágóða af komu þessara ferðamanna, en líka fyrir ferðaþjónustuna í heild sinni. Eftir langvarandi neikvæð áhrif heimsfaraldursins eru þetta jákvæðar fréttir sem fyrirtæki í ferðaþjónustu þurfa á að halda. Þetta hvetur okkur öll sem störfum í greininni til að líta björtum augum til framtíðar,“ segir hún í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×