Inga Lind er þáttastjórnandi í þáttunum Bætt um betur sem hefja göngu sína á Stöð 2 í kvöld. Með henni eru innanhússarkitektinn Ragnar Sigurðsson og Kári Sverris ljósmyndari.
„Þegar við fórum af stað með þróun á þessum þætti sem okkur langaði að gera, þá settist ég niður með dætrum mínum sem eru ungar og að byrja að búa og eru mikið að pæla í þessu. Þær sögðu að ég þyrfti að hafa samband við Ragnar og Kára,“ segir Inga Lind um það hvernig samstarfið við þá byrjaði.
Sjón er sögu ríkari
Parið heldur úti blogginu Appreciate The Details og samnefndri Instagram-síðu og sýndu þar frá því þegar þeir tóku eigin íbúð í gegn frá A til Ö.
Eins og fram hefur komið hér á Vísi eru Bætt um betur skemmtilegir þættir þar sem alls konar rými hjá fólki eru tekin í gegn. Hver þáttur er því stútfullur af innblæstri, hugmyndum, fallegri innanhússhönnun og góðum ráðum.
„Þau eru bara eins og ný á eftir,“ segir Inga Lind um rýmin sem þau vinna með í þessari þáttaröð.
„Sum eru tekin í gegn á hóflegan og léttan hátt og önnur alveg, þá erum við komin inn á sviðið hjá Gulla byggir, og rífum allt út og byrjum upp á nýtt.“
Í þáttunum taka þau meðal annars í gegn stigagang, heilt hús, eldhús, baðherbergi, barnaherbergi og fleira. Leikstjóri þáttanna er Saga Sigurðardóttir ljósmyndari og listakona.
„Sjón er sögu ríkari,“ segir Inga Lind.
Sýnishorn úr þáttunum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Viðtalið úr Bítinu við þetta smekklega og flotta þríeyki má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.