Iðnnemar á samningi hjá BL
Með nemastofunni, sem er samstarfsvettvangur samtaka í atvinnulífinu um bætt vinnustaðanám og fjölgun faglærðs starfsfólks, er ætlunin að tvöfalda fjölda fyrirtækja og iðnmeistara sem taka til sín iðnnema enda er talið að þúsundir iðnmenntaðra vanti til starfa hér á landi. Þess má geta að frá 2018 hafa 34 iðnnemar í bifreiðasmíði, bifvélavirkjun eða málun hafið störf á iðnsamningi hjá BL og starfa tuttugu og fjórir enn hjá fyrirtækinu; tíu nemar og fjórtán sem lokið hafa sveinsprófi.
![](https://www.visir.is/i/74B184AB2257F4B3EEC077FDE0B4607F1A57A6089C8C05DF260317FC344FBCC0_713x0.jpg)
Nemastofa atvinnulífsins
Með Nemastofu atvinnulífsins er ætlunin að auka yfirsýn yfir fjölda nemenda í vinnustaðanámi og bæta og einfalda aðgengi nemenda að starfsnámi. Nemastofan er í jafnri eigu Iðunnar fræðsluseturs og Rafmenntar fyrir hönd fyrirtækja og félagsmanna sem þar eru meðlimir eins og hægt er að kynna sér á vefsetrinu idan.is og rafmennt.is.