Úrslitaviðureignin er þó ekki það eina sem verður í gangi í útsendingunni því við hefjum leik á svokölluðu Showmatch á milli Kúrekana hans Monty og Nautana hans Tomma. Lýsendurnir Kristján Einar Kristjánsson hafa þá fengið með sér í lið stjörnur deildarinnar og munu liðin útkjlá málin í CS:GO.
Þegar það er búið verður PubQuiz í beinni útsendingu frá þjóðarhöll Íslendinga í rafíþróttum, Arena. Þar geta áhorfendur heima í stofu prófað sig og séð hversu mikið þau vita um CS.
Klukkan 20:15 er svo komið að stóru stundinni þegar Dusty og Þór berjast um Stórmeistaratitilinn. Deildarmeistarar Dusty eiga titil að verja, en Þórsarar ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva sigurgöngu Dusty.
Beina útsendingu frá viðburðinum má sjá á Stöð 2 eSport, eða einfaldlega í spilaranum hér fyrir neðan.