Í yfirlýsingu sem stjórn Twitter sendi Bloomberg-fréttastofunni í dag segir að hún hyggist ljúka viðskiptunum og framfylgja samrunasamningnum við Musk, eiganda rafbílaframleiðandans Tesla og geimferðafyrirtækisins SpaceX.
Musk hefur undanfarna daga sagt að ekki sé hægt að ljúka viðskiptunum fyrr en botn fæst í hversu hátt hlutfall reikninga á Twitter eru yrki sem birta amapósta. Hann heldur því fram að hlutfallið sé allt að fjórfalt hærra en þau innan við 5% sem Twitter hefur sagt í tilkynningum til bandarískra yfirvalda í gegnum tíðina.
Nánast frá upphafi hafa verið vangaveltur um að Musk ætlaði sér ekki að standa við kaupin og hefur yfirlýsingar hans upp á síðkasti gefið þeim byr undir báða vængi. Bloomberg segir þó að í samningnum sé ákvæði um að ef annar aðilinn hætti við þurfi hann að greiða einn milljarð dollara.
Musk nægði þó ekki að greiða milljarðinn til að verða laus allra mála. Samkvæmt samningnum gæti stjórn Twitter stefnt honum til að standa við hann frekar en að greiða bætur fyrir vanefndir.