Þetta er í annað skiptið sem Östland vinnur Gullpálmann. Mynd hans „Torgið“ hlaut verðlaunin sem besta myndin árið 2017.
„Þríhyrningur depurðinnar“ fjallar um fyrirsætur og auðkýfinga sem lenda í lífsháska í lúxussiglingu sem umturnar samfélagsskipaninni, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.
„Þegar við byrjuðum á myndinni held ég að ég hafi hat eitt markmið, að reyna virkilega að gera spennandi mynd fyrir áhorfendur og búa til efni sem vekur þá til umhugsunar. Við vildum skemmta þeim, við vildum að þeir spyrðu sig spurninga, við vildum að þeir hefðu eitthvað að ræða um eftir að sýningunni lyki,“ sagði Östlund við fréttamenn.
Verðlaunin fyrir bestu leikstjórn féllu í skaut Park Chan-wook frá Suður-Kóreu fyrir erótísku glæpasöguna „Ákvörðun um að fara“. Hann er einna helst þekktur fyrir myndina „Gamla strák“ (e. Oldboy) frá árinu 2003.
Suðurkóreumaður hlaut einnig verðlaunin sem besti leikarinn. Þau vann Song Kang-ho fyrir myndina „Miðlarann“. Song hlaut heimsfrægð fyrir leik sinn í suðurkóresku Óskarsveðlaunamyndinni „Snýkjudýri“ árið 2019.