Bensínverð Orkunnar hækkar um 30 krónur með nokkrum metrum Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 2. júní 2022 21:00 35 metrar í bensín á 324,2 krónur lítrann. Hinum megin við götuna er bensínið þó mun ódýrara eins og sést á þessari mynd. vísir/vilhelm Verð á bensíni hefur aldrei verið hærra í krónum talið og er fyrirséð að það hækki enn meira á næstu vikum. Bensínfyrirtæki eiga erfitt með að skýra gríðarlegan verðmun milli eigin stöðva, jafnvel stöðva sem liggja hlið við hlið.
Að taka bensín er orðið hálfsársaukafullt þessa dagana. Það hefur nefnilega aldrei verið dýrara að fylla á tankinn en í dag því síðustu mánuði hefur átt sér stað söguleg hækkun á bensínverði í öllum heiminum, líka hér heima. Helsta skýringin er auðvitað stríðið í Úkraínu en ef meðalverð bensínlítrans þann 24. febrúar, daginn sem innrás Rússa hófst, er borið saman við meðalverð dagsins í dag kemur í ljós að bensínverð hefur hækkað um 16 prósent síðan þá, eða um rúmar tæpar 43 krónur. Á höfuðborgarsvæðinu er staðlað lítraverð fyrirtækjanna nú í kring um rúmar 320 krónur; N1 selur lítrann á 328,9 krónur, Atlantsolía á 324,3 krónur og Orkan er svo tíu aurum ódýrari en Atlantsolía. Lítrinn hjá Olís er víðast hvar á 325,8 krónur, hjá OB er hann 324,3 kr. Þetta eru algengustu verð bensínstöðvanna en þær lækka sums staðar verð sitt talsvert. Ódýrast er bensínið samt hjá Costco á 290,2 krónur fyrir lítrann. Ódýrast í kring um Costco og á Bústaðavegi En fyrirtækin festa sig ekki í einu verði heldur er það breytilegt eftir stöðvum. Það eru ekki miklar breytingar í bænum nema einmitt helst í kring um Costco þar sem flest fyrirtækin selja lítrann miklu ódýrara en í Reykjavík - eða á rúmar 290 krónur. „Við erum náttúrulega bara í samkeppni. Það er náttúrulega bara eins og allir aðrir og við gerum okkar besta í því. En þetta er hörð samkeppni,“ segir Kristín Björg Árnadóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Orkunni, til skýringar. Kristín Björg segir erfitt að skýra verðmun milli stöðva. Stöðin á Bústaðavegi til suðausturs sé þó ein þeirra þar sem fyrirtækið sér hagkvæmni í því að bjóða upp á langódýrasta bensínverð á landinu - fyrir utan Costco.vísir/arnar En stundum er verðmunur milli stöðva illskiljanlegur. Á Bústaðavegi má til dæmis finna ódýrasta bensínverð í Reykjavík hjá Orkunni en rétt hinum megin við götuna er lítrinn um þrjátíu krónum dýrari - og það hjá sama fyrirtæki. „Það er kannski ekki beint hægt að svara því hér og nú hvers vegna það er. Við erum með nokkrar stöðvar bæði á Akureyri og svo hér á höfuðborgarsvæðinu þar sem við bjóðum þessi bestu verð,“ segir Kristín Björg. „Við teljum þetta vera hagstæða rekstrareiningu og við getum boðið ódýrara verð hér.“ Geta boðið ódýrara verð hér heldur en örfáum metrum austar - lógíg sem er kannski ekki allra að skilja en er þó hægt að nýta sér ef maður veit af henni og vill næla sér í ódýrasta bensíndropann í bænum.
Neytendur Verðlag Bensín og olía Tengdar fréttir Kalla eftir að stjórnvöld bregðist við síhækkandi eldsneytisverði Félag íslenskra bifreiðaeigenda kallar eftir því að stjórnvöld bregðist við síhækkandi eldsneytisverði, sem hefur aldrei verið hærra. Framkvæmdastjóri félagsins segir hækkanirnar sérstaklega koma niður á þeim sem hafi minna á milli handanna og þeim sem þurfi að ferðast langar vegalengdir. 2. júní 2022 19:12 Bílaleigur stórauka bílakaup en horfa í auknum mæli til bensín- og dísilbíla Fleiri horfa nú til bensín- og dísilbíla, sérstaklega bílaleigur, eftir að verð á tengiltvinnbílum hækkaði í vor. Stóraukin umsvif bílaleiga eru meginástæða þess að sala á bílum jókst verulega á milli ára fyrstu mánuði ársins. 1. júní 2022 10:49 Verðbólga í 7,6 prósent og ekki mælst meiri í tólf ár Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 0,77% milli mánaða og stendur nú í 539,5. Matarverð, húsnæðiskostnaður og bensín er á meðal þess sem hefur hækkað umtalsvert frá síðasta mánuði og orsakar hækkun vísitölu neysluverðs, en verðbólga hefur ekki mælst meiri í tólf ár. 30. maí 2022 10:19 Mest lesið Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Viðskipti innlent Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Viðskipti innlent Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Viðskipti innlent „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðskipti innlent Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Viðskipti innlent Isavia gefur strandaglópum engin grið Viðskipti innlent Búið að greiða laun og barnabætur Viðskipti innlent Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Viðskipti innlent Gjörbreyttar kröfur og vinna ekki lengur aðeins til að hafa í sig og á Atvinnulíf Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Lækkar vexti og boðar frekari innreið á lánamarkað „Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Sjá meira
Kalla eftir að stjórnvöld bregðist við síhækkandi eldsneytisverði Félag íslenskra bifreiðaeigenda kallar eftir því að stjórnvöld bregðist við síhækkandi eldsneytisverði, sem hefur aldrei verið hærra. Framkvæmdastjóri félagsins segir hækkanirnar sérstaklega koma niður á þeim sem hafi minna á milli handanna og þeim sem þurfi að ferðast langar vegalengdir. 2. júní 2022 19:12
Bílaleigur stórauka bílakaup en horfa í auknum mæli til bensín- og dísilbíla Fleiri horfa nú til bensín- og dísilbíla, sérstaklega bílaleigur, eftir að verð á tengiltvinnbílum hækkaði í vor. Stóraukin umsvif bílaleiga eru meginástæða þess að sala á bílum jókst verulega á milli ára fyrstu mánuði ársins. 1. júní 2022 10:49
Verðbólga í 7,6 prósent og ekki mælst meiri í tólf ár Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 0,77% milli mánaða og stendur nú í 539,5. Matarverð, húsnæðiskostnaður og bensín er á meðal þess sem hefur hækkað umtalsvert frá síðasta mánuði og orsakar hækkun vísitölu neysluverðs, en verðbólga hefur ekki mælst meiri í tólf ár. 30. maí 2022 10:19