Atlantsolía fylgdi skammt á eftir með viðlíka hækkun og innan við sólarhring síðar hækkaðu N1, ÓB og Olís verð um sjö krónur og fóru þar með yfir 350 krónu múrinn. Orkan og Atlantsolía brugðust svo við með því lækka sig niður fyrir verð keppinautanna.
Áfram er hægt að kaupa bensín á um og yfir 320 krónur lítrann á vissum stöðvum Orkunnar, ÓB, Atlantsolíu og N1 en á flestum stöðum er verð nú komið yfir umtalaðar 350 krónur. Þetta má lesa úr gögnum GSMBensín frá höfuðborgarsvæðinu.
Ekki lengur hægt að kaupa bensín undir 300 krónum
Áfram fæst ódýrasta bensínið hjá Costco í Kauptúni á 311,6 krónur lítrann en næst á eftir koma valdar stöðvar Orkunnar við Bústaðaveg, Dalveg og Reykjavíkurveg sem selja lítrann á 320,70 krónur. Þá bjóða valdar stöðvar ÓB og Atlantsolíu upp á bensín á 320,80 krónur þegar þetta er skrifað. Verð er nokkuð hærra á öðrum sölustöðum fyrirtækjanna líkt og áður segir og getur munurinn numið um þrjátíu krónum.
Lengi vel var Costco síðasti söluaðilinn til þess að bjóða upp á bensín undir 300 krónum á lítrann en það breyttist þann 10. júní þegar verð var hækkað í 302,8 krónur. Það hefur síðan verið hækkað um 8,8 krónur til viðbótar. Rúmir þrír mánuðir eru liðnir frá því að bensínverð fór yfir 300 krónur víðast hvar hér á landi.