Viðskipti innlent

Enn heil­mikið elds­neyti á bálinu til að við­halda hækkunum á hús­næðis­verði

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Húsnæðisverð hefur hækkað mikið að undanförnu.
Húsnæðisverð hefur hækkað mikið að undanförnu. Vísir/Vilhelm.

Árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mælist nú 24 prósent. Sérbýli hefur hækkað mest eða um ríflega fjórðung á sama tíma og fjölbýli hefur hækkað um tæplega 24 prósent

Í hverjum mánuði er nýtt met slegið í meðalsölutíma og fjölda íbúða sem seljast yfir ásettu verði. Í apríl seldust 65 prósent íbúða á svæðinu yfir ásettu verði samkvæmt opinberum upplýsingum. 

Greining Íslandsbanka vekur athygli á því í dag að þetta séu mestu verðhækkanir frá árinu 2006 og ekki sjái fyrir endann á þeim.

Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri fræðslu og greiningarhjá Íslandsbanka.Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

„Við erum að spá því að það ætti að hægja á hækkunum með haustinu. En það er ennþá heilmikið eldsneyti á bálinu til að halda áfram þessum hækkunum næstu vikur og mánuði, já, segir Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri fræðslu og greiningar hjá Íslandsbanka.

Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti til að draga úr hækkunum og kynnti aðgerðir í síðustu viku þar sem fyrstu kaupendum er meðal annars ráðlagt frá því að taka verðtryggð lán.

Seðlabankinn kynnir nýja stýrivaxtaákvörðun á morgun.

„Við höfum gefið út fyrirvaxtaspá þar sem við spáum því að hann hækki stýrivexti um 0,75 prósentur sem er stórt skref til að kæla niður íbúðamarkaðinn og ná niður verðbólgu,“ segir Björn Berg.

Björn segir jákvætt að mörg sveitarfélög hafi kynnt uppbyggingaráform og aukið lóðaframboð.Það taki hins vegar yfirleitt nokkur ár að reisa húsnæði. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×