Gríðarleg stemming á opnunarleik EM - myndasyrpa
Hjörvar Ólafsson skrifar
Stuðningsmenn enska liðsins á leiðinni á Old Trafford. Vísir/Vilhelm Gunnarsson
Evrópumótið í fótbolta kvenna hófst í kvöld með leik Englands og Austurríkis en leikurinn fer fram á troðfullum Old Trafford. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, er á vellinum og fangaði stemminguna fyrir leikinn.
Þegar þessi frétt er skrifuð er hálfleikur og staðan 1-0 Englandi í vil. Það var Beth Mead sem skoraði fyrsta mark mótsins og kom gestgjöfunum yfir á 17. mínútu leiksins.
Hægt er að fylgjst með beinni textalýsingu frá leiknum í fréttinni hér að neðan: