Sjö hægri 1. umferðar: Stofnunin Hanna, vörutalning og árás í Kórnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. september 2022 11:01 Olís-deild kvenna er farin af stað. Keppni í Olís-deild kvenna í handbolta hófst í síðustu viku. Vísir tekur saman sjö eftirtektarverð atriði úr umferðinni.
Stjarnan skellti Íslandsmeisturum Fram í upphafsleik tímabilsins, Valur kjöldró Hauka í KFUK-slagnum, nýliðar Selfoss unnu sjö marka sigur í Kórnum og KA/Þór fór stigalaust frá Eyjum. Langþráð nýliðastig Selfyssingar sýndu að þeim er alvara með því að fara í Kórinn og vinna flottan sjö marka sigur á HK-ingum, 25-32. Þetta var í fyrsta sinn í 921 dag sem nýliðar vinna leik í Olís-deild kvenna, eða síðan Afturelding sigraði HK 11. mars 2020. FH 2021 og Afturelding 2022 fengu ekki stig en Selfoss ætlar ekki að vera neitt fallbyssufóður. Katla María Magnúsdóttir og Rakel Guðjónsdóttir áttu stórleik og Ásdís Þóra Ágústsdóttir styrkir þær vínrauðu mikið. Síung Hanna Hanna Guðrún Stefánsdóttir hóf sitt 28. tímabil í meistaraflokk með því að hjálpa Stjörnunni að vinna sannfærandi sigur á Íslandsmeisturum Fram, 26-20. Hanna er fædd 1979 og er því 43 ára. Hún var fyrst í hóp í meistaraflokki 1995. Þá voru fæstar sem tóku þátt í leiknum í Mýrinni fæddar. Hanna er nánast orðin stofnun í íslenskri íþróttasögu og heldur áfram að skrifa sína ótrúlegu sögu. Tölfræðingur umferðarinnar Síðast þegar Ragnar Hermannsson þjálfaði meistaraflokk var HB Statz ekki til. Kannski gleymdist að segja honum frá tilvist HB Statz því Ragnar tók sjálfur tölfræði í leik Vals og Hauka. Hann var með blað og penna á hliðarlínunni og minnti um margt á starfsmann í vörutalningu. Vonandi er að gagnasöfnunin gagnist Haukum í næsta leik. Ekki er vanþörf á enda tapaði liðið með fimmtán mörkum gegn Val, 37-22. Neyðaraðstoð til Fram Öllum sem horfðu á leiki Fram gegn Val í Meistarakeppninni og Stjörnunni í upphafsleik Olís-deildarinnar mátti ljóst vera að meistararnir þurftu á hjálp að halda. Og þeir hafa sótt hana í formi tveggja erlendra skytta; Madeleine Lindholm frá Finnlandi og Tamöru Joicevic frá Svartfjallalandi. Það er eins gott fyrir Frammara að reynist öflugur liðsstyrkur ef þeir ætla að keppa að alvöru um titlana sem í boði eru. Líkamsárás í Kórnum Því miður fyrir Selfoss snerist stór hluti umræðunnar eftir sigurinn í Kórnum um brot Robertu Stropé á Valgerði Ýri Þorsteinsdóttur. Á 11. mínútu kýldi Roberta Valgerði hreinlega kalda en slapp á einhvern óskiljanlegan hátt við rautt spjald. Brotið var með þeim ljótari sem sést hafa í langan tíma, Valgerður var borin af velli og tók ekki frekari þátt í leiknum. Dómarar landsins hafa eflaust vökulla auga með Robertu eftir þetta ógeðisbrot. Engin Rut, ekkert partí en samt von Rut Jónsdóttir var fjarri góðu gamni vegna meiðsla þegar KA/Þór mætti ÍBV í Eyjum. Eins og við mátti búast var á brattann að sækja fyrir Akureyringa sem mæta mikið breyttir til leiks frá síðustu árum. Eyjakonur voru alltaf með frumkvæðið og lengst af góða forystu. En Akureyringar gáfust ekki upp og aðeins einu marki munaði á liðunum þegar uppi var staðið, 28-27. Lokatölurnar eru svolítið villandi en KA/Þór sýndi að þær geta spjarað upp að vissu marki án Rutar. Sannfærandi meistarakandítatar Valur kemur inn í tímabilið sem sigursælasta liðið og gegn Haukum sýndu Hlíðarendastúlkur að bjartsýnin er á rökum reist. Valskonur voru gríðarlega sannfærandi á allan hátt; markvarslan var góð, vörnin öflug og sóknin skilvirk (73 prósent skotnýting og bara fimm tapaðir boltar). Hildigunnur Einarsdóttir fór á kostum á línunni og örvhentu leikmennirnir nutu sín vel. Valur á eftir að fá miklu stærri og erfiðari próf en frammistaðan á föstudaginn gefur góð fyrirheit.
Olís-deild kvenna Tengdar fréttir Finnsk skytta til Fram Íslands- og deildarmeistarar Fram hafa samið við finnsku skyttuna Madeleine Lindholm. Hún kemur til Fram frá Sjundeå í heimalandinu. 20. september 2022 16:01 „Selfoss græðir á því og hún græðir á því“ Ásdís Þóra Ágústsdóttir kom að láni til Selfoss frá Val fyrir tímabilið í Olís-deildinni í handbolta og sérfræðingarnir í Seinni bylgjunni hafa mikla trú á að hún reynist nýliðunum dýrmæt. 20. september 2022 15:30 „Þetta er líkamsárás“ Óskiljanlegt er að Roberta Stropé hafi sloppið við rautt spjald fyrir fólskulegt brot á Valgerði Ýri Þorsteinsdóttur í leik HK og Selfoss í 1. umferð Olís-deildar kvenna. Þetta var mat sérfræðinga Seinni bylgjunnar. 20. september 2022 11:01 Íslandsmeistararnir sækja liðsstyrk Íslandsmeistarar Fram hafa sótt liðsstyrk í Tamara Joicevic, svartfellskri vinstri skyttu, sem mun leika með liðinu í komandi átökum í Olís-deild kvenna í vetur. 19. september 2022 19:46 Valskonur einar um að fljúga frá Íslandi Tvö íslensku liðanna sem leika í 2. umferð Evrópubikars kvenna í handbolta munu leika einvígi sín alfarið á heimavelli en bikarmeistarar Vals spila hins vegar báða leiki sína á útivelli. 19. september 2022 15:01 Handkastið: „Þolpróf dómara er leikþáttur“ Ekki virðast vera gerðar miklar þolkröfur til dómara í Olís-deildunum í handbolta eins og fjallað var um í Handkastinu. 19. september 2022 11:00 Áfram kvarnast úr leikmannahópi Íslandsmeistaranna Íslandsmeistarar Fram mættu með mikið breytt lið inn í tímabilið sem er nýhafið í Olís deild kvenna í handbolta. Það heldur áfram að kvarnast úr leikmannahópi liðsins en Jónína Hlín Hansdóttir hefur ákveðið að halda til Slóvakíu og stunda þar nám í dýralækningum. 19. september 2022 09:30 Martha Hermannsdóttir leggur skóna á hilluna Martha Hermannsdóttir, ein reyndasta handboltakona landsins, hefur ákveðið að kalla þetta gott af handboltaiðkun og lagt skóna á hilluna frægu. 17. september 2022 22:31 Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti John Cena hættur að glíma Sport Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Hundrað ára vaxtarræktarkappi Sport Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Fótbolti Fleiri fréttir Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Forsetinn mætir ekki á úrslitaleik HM kvenna Leik lokið: Haukar - KA/Þór 35-20 | Þriggja leikja taphrinu lokið með fimmtán marka sigri Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Sjá meira
Finnsk skytta til Fram Íslands- og deildarmeistarar Fram hafa samið við finnsku skyttuna Madeleine Lindholm. Hún kemur til Fram frá Sjundeå í heimalandinu. 20. september 2022 16:01
„Selfoss græðir á því og hún græðir á því“ Ásdís Þóra Ágústsdóttir kom að láni til Selfoss frá Val fyrir tímabilið í Olís-deildinni í handbolta og sérfræðingarnir í Seinni bylgjunni hafa mikla trú á að hún reynist nýliðunum dýrmæt. 20. september 2022 15:30
„Þetta er líkamsárás“ Óskiljanlegt er að Roberta Stropé hafi sloppið við rautt spjald fyrir fólskulegt brot á Valgerði Ýri Þorsteinsdóttur í leik HK og Selfoss í 1. umferð Olís-deildar kvenna. Þetta var mat sérfræðinga Seinni bylgjunnar. 20. september 2022 11:01
Íslandsmeistararnir sækja liðsstyrk Íslandsmeistarar Fram hafa sótt liðsstyrk í Tamara Joicevic, svartfellskri vinstri skyttu, sem mun leika með liðinu í komandi átökum í Olís-deild kvenna í vetur. 19. september 2022 19:46
Valskonur einar um að fljúga frá Íslandi Tvö íslensku liðanna sem leika í 2. umferð Evrópubikars kvenna í handbolta munu leika einvígi sín alfarið á heimavelli en bikarmeistarar Vals spila hins vegar báða leiki sína á útivelli. 19. september 2022 15:01
Handkastið: „Þolpróf dómara er leikþáttur“ Ekki virðast vera gerðar miklar þolkröfur til dómara í Olís-deildunum í handbolta eins og fjallað var um í Handkastinu. 19. september 2022 11:00
Áfram kvarnast úr leikmannahópi Íslandsmeistaranna Íslandsmeistarar Fram mættu með mikið breytt lið inn í tímabilið sem er nýhafið í Olís deild kvenna í handbolta. Það heldur áfram að kvarnast úr leikmannahópi liðsins en Jónína Hlín Hansdóttir hefur ákveðið að halda til Slóvakíu og stunda þar nám í dýralækningum. 19. september 2022 09:30
Martha Hermannsdóttir leggur skóna á hilluna Martha Hermannsdóttir, ein reyndasta handboltakona landsins, hefur ákveðið að kalla þetta gott af handboltaiðkun og lagt skóna á hilluna frægu. 17. september 2022 22:31