Lagið kom út í ágúst síðastliðnum og hefur verið á uppleið á listanum á síðastliðnum vikum. Það er nóg um að vera hjá þessum rappara en hann ætlar að blása til afmælistónleika 19. nóvember næstkomandi í Hörpu.
Samkvæmt Instagram verður hljómsveit með honum, sala á varningi og mun hann taka öll sín vinsælustu lög frá upphafi. Þá mun hann einnig fá til sín góða gesti, þau Birni, Bríeti, Clubdub, GDRN og Unnstein.
Bríet situr svo stöðug á toppi Íslenska listans á FM þriðju vikuna í röð með einstaka ábreiðu af laginu Dýrð í Dauðaþögn frá Ásgeiri Trausta. Armenska Eurovision söngkonan Rosa Linn fylgir fast á eftir með lagið Snap! sem hefur farið sem eldur um sinu á samfélagsmiðlinum TikTok og náð gríðarlegum vinsældum víða um heiminn að undanförnu.
Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.
Lög Íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: