Porsche ætlaði að kaupa 50% hlut í Red Bull liðinu og taka þar með yfir sigursælt lið. Hins vegar varð nýlega ljóst að þau plön verða að engu. Samningar náðust ekki um hvernig stjórn liðsins skyldi háttað. Red Bull sýndi í verki að liðið hefur fullt traust til sjálfs síns til að halda áfram að byggja á þeim árangri sem það er að ná. Liðið tryggði sér heimsmeistaratitil bílasmiða árið 2022 í Bandaríkjunum síðustu helgi. Einhverjar raddir hafa verið uppi um að Honda sé að íhuga að koma aftur inn sem vélaframeleiðandi, hugsanlega árið 2026.
Meðfylgjandi er myndband af YouTube-rás WTF1.Audi mætir til leiks sem vélaframleiðandi 2026 | Gætu tekið við af Sauber
Sauber liðið hefur átt misjöfnu gengi að fagna í gegnum sitt æviskeið. Mestum árangri náði liðið þegar annar þýskur bílaframleiðandi, BMW keypti stóran hluta í liðinu á fyrsta áratug aldarinnar. Þar sem pólski ökumaðurinn Robert Kubica var í fararbroddi.
Það verður áhugavert að fylgjast með samstarfi Audi og Sauber, enn er óljóst hversu stóran hlut Audi kaupir í Sauber og hvernig málum er háttað þangað til. Samningur Sauber og Alfa Romeo rennur út í lok árs 2023. Þá taka við tvö ár þar sem liðið verður líklega kallað Sauber á ný, meðan það bíður eftir að verða kallað Audi.
Upphaflega var samstarfið tilkynnt í Belgíu, helgina sem Spa kappaksturinn fór fram. Nú hefur næsta stóra skref verið tekið og samningar undirritaðir.