Tilþrifin: MiNidGreez! sýndi frábær tilþrif er Þórsarar lyftu sér á toppinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 28. október 2022 10:45 MinideGreez! á Elko tilþrif gærkvöldsins. Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það miNideGreez! í liði Þórs sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.
Þór mætti stigalausu liði Ten5ion í annarri viðureign gærkvöldsins. Með sigri gátu Þórsarar tyllt sér á topp Ljósleiðaradeildarinnar, en þrjú lið voru jöfn á toppnum fyrir leiki gærkvöldsins. Þór, LAVA og ríkjandi meistarar Dusty voru öll jöfn í efsta sæti með tíu stig, en Þór átti leik til góða. Þórsarar höfðu að lokum betur gegn Ten5ion í gær, 16-12. Þórsliðið lyfti sér ekki bara á toppinn í gær, heldur átti meðlimu liðsins, miNideGreez!, einnig tilþrif gærkvöldsins þegar hann tók út Moshii af löngu færi. Ekki nóg með það að færið hafi verið langt heldur gerði miNideGreez! það einnig í gegnum reykmökk og skjöld, en tilþrifin má sjá í spilaranum hér að neðan. Klippa: Elko tilþrifin: MiNidGreez! sýndi frábær tilþrif er Þórsarar lyftu sér á toppinn
Ljósleiðaradeildin Rafíþróttir Mest lesið Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Enski boltinn Segir slagsmálin í klefanum hafa verið ofbeldisfull og ofsafenginn Fótbolti Grófu sig undir girðingu og stálu milljónum frá félaginu Fótbolti Magnús Eyjólfsson er látinn Sport Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Körfubolti „Lukkudýrið“ í mál við félagið Körfubolti ÍR-ingar sækja Grikkja á Álftanesið: „Sannkallaðar gleðifréttir“ Körfubolti „Djöfull er gaman að vinna loksins aftur“ Fótbolti Stjarnan er meistari meistaranna Handbolti Uppgjörið: Breiðablik - Virtus 2-1 | Blikar bara einu marki yfir Fótbolti