Eftir að Króatar og Svisslendingar gerðu 26-26 jafntefli fyrr í kvöld var ljóst að norska liðið hafði þegar tryggt sér sigur í A-riðli áður en liðið mætti Ungverjum í lokaleik riðilsins.
Nokkuð jafnræði var með liðunum framan af leik og staðan í hálfleik var 14-12, norska liðinu í vil. I síðari hálfleik réðu þær ungversku hins vegar illa við norska liðið og Noregur vann að lokum öruggan marka sigur, .
Noregur fer því með fullt hús stiga í gegnum A-riðilinn, en Króatía og Ungverjaland fylgja liðinu upp í milliriðil.
Á sama tíma mættust Danir og Svíar í B-riðli, en þar höfðu bæði lið einnig tryggt sér sæti í milliriðli eftir að heimakonur í slóvenska landsliðinu unnu þriggja marka sigur gegn Serbíu fyrr í kvöld.
Danska liðið hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleik og skoraði 13 mörk gegn aðeins fimm mörkum Svía. Brekkan var því brött fyrir sænska liðið í síðari hálfleik, en Danir unnu að lokum nokkuð öruggan marka sigur, .
Sigurinn þýðir að Danmörk, Svíþjóð og Slóvenía enda öll með fjögur stig í riðlinum, en eftir innbyrðisútreikninga eru það Svíar sem hreppa efsta sætið, Danir annað og Slóvenar þriðja.