FTX er nokkurs konar kauphöll þar sem rafmyntir ganga kaupum og sölum. Áhyggjur af stöðu fyrirtækisins leiddi til áhlaups þar sem viðskiptavinir seldu rafmyntir sínar fyrir um sex milljarða dollara, jafnvirði um 889 milljarða íslenskra króna, á aðeins þremur dögum.
Áhlaupið varð til þess að Sam Bankman-Fried, forstjóri og stofnandi FTX, bað fjárfesta um að leggja fyrirtækinu til um átta milljarða dollara til þess að það gæti átt fyrir úttektarbeiðnum viðskiptavina sinna samkvæmt heimildum Wall Street Journal.
Breska ríkisútvarpið BBC segir að áhættufjárfestingafélagið Sequoia Capital hafi nú þegar afskrifað meira en 210 milljón dollara fjárfestingu sína í FTX.

Bókhaldið eins og svarthol
Binance, stærsta rafmyntarkauphöllin, skoðaði að koma FTX til bjargar en tilkynnti í gær að það ætlaði að sitja hjá eftir að hafa kynnt sér reksturinn. Changpeng Zhao, forstjóri Binance, og Bankman-Fried eru tvö af stærstu nöfnunum í rafmyntarheiminum og keppinautar.
Í yfirlýsingu Binance kom fram að áhyggjur af því að FTX hafi misfarið með fjármuni viðskiptavini og mögulegri rannsókn bandarískra alríkisyfirvalda hafi ráðið því að það féll frá kaupum á keppinautnum. Bókhald FTX hafi verið í miklum ólestri og ómögulegt að greina á milli eigna félagsins og skulda dótturfélags sem hefur verið í kröggum. Einn heimildarmaður AP-fréttastofunnar líkti bókhaldinu við „svarthol“.
Reuters-fréttastofan sagði frá því í gær að verðbréfa- og kaupþingsnefnd Bandaríkjanna (SEC) væri að rannsaka viðskiptahætti FTX, meðal annars hvort fyrirtækið hefði fylgt lögum um verðbréf sem kveða á um að halda skuli eignum viðskiptavina aðskildum og hvort að það hefði mögulega tekið stöður gegn viðskiptavinum sínum.
Eftir að Binance dró sig út úr kaupunum á FTX féll gengi rafmyntarinnar bitcoin um þrettán prósent og hefur það ekki verið lægra í tvö ár. Ethereum, hin stóra rafmyntin, féll einnig um þrettán prósent, að sögn AP-fréttastofunnar.

FTT, rafmynt FTX féll hins vegar um meira en helming eftir fréttirnar. Myntin var tífalt meira virði en hún er nú fyrir aðeins viku.
Á meðal þeirra sem eru sögð hafa fjárfest háar fjárhæðir í FTX er bandaríski ruðningsmaðurinn Tom Brady og Gisele Bündchen, ofurfyrirsæta og fyrrverandi eiginkona hans. Vefsíðan Gizmodo segir óljóst hversu mikið þau hafi sett í FTX en þau tóku bæði að sér að verða einhvers konar sendiherrar fyrir fyrirtækið í fyrra.
Fall Bankman-Fried er einnig hátt. Forbes segir að auðæfi hans þurrkist nær örugglega út en þau hafa fyrst og fremst byggst á markaðsvirði FTX. Þegar mest lét mat tímaritið auð hans á 26,5 milljarða dollara, jafnvirði hátt í fjögur þúsund milljarða íslenskra króna.