Færðu Kvennaathvarfinu tveggja milljóna styrk N1 10. nóvember 2022 11:52 Á myndinni má sjá Lindu Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdarstýru Kvennaathvarfsins, Þyrí Dröfn Konráðsdóttir forstöðukonu markaðsmála hjá N1. Hinrik Örn Bjarnason framkvæmdastjóri N1 og Sigrúnu Eddu Elíasdóttir verkefnastjóra markaðsmála hjá N1 N1 færði Kvennaathvarfinu tveggja milljóna króna styrk í dag. Forsvarsfólk athvarfsins safnar nú fyrir nýju húsnæði undir starfsemina sem veitir sífellt fleiri konum aðstoð við að losna úr ofbeldissamböndum. Sökum aukinnar aðsóknar, breiðari þjónustu og aðgengismála er brýn þörf fyrir nýtt húsnæði, en áætlað er að nýja húsnæðið muni kosta um 500 milljónir króna.
Rúmlega 700 konur og börn þeirra sækja árlega í Kvennaathvarfið í leit að stuðningi, ráðgjöf, aðhlynningu og öruggu skjóli. Nú stendur yfir söfnun fyrir byggingu nýs, sérhannaðs athvarfs þar sem ætlunin er að sinna á einum stað þeirri fjölbreyttu þjónustu sem þarf að veita konum og börnum þeirra við losna undan ofbeldi. Söfnunin stendur yfir til mánaðamóta og verður sérstakur umfjöllunarþáttur um söfnunina á Stöð 2 í kvöld, fimmtudaginn 10. nóvember. Ljóst er að bygging athvarfsins er kostnaðarsöm en sala á núverandi húsnæði Kvennaathvarfsins og það fjármagn sem safnast hefur nú þegar stendur aðeins undir helmingi kostnaðarins. Því leitar Kvennaathvarfið til einstaklinga og fyrirtækja, eins og N1, til þess að nýtt athvarf geti orðið að veruleika. N1 lét fimm krónur af hverjum lítra af bensíni og díselolíu sem seldist þriðjudaginn 8. nóvember renna til Kvennaathvarfsins. Alls söfnuðust tvær milljónir króna sem N1 færði Kvennaathvarfinu í morgun. Nánari upplýsingar um verkefnið og styrktarleiðir má nálgast á vefsíðu Kvennaathvarfsins.
Heimilisofbeldi Mest lesið Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Viðskipti innlent SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda Viðskipti innlent „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Viðskipti innlent Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Viðskipti innlent Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Viðskipti erlent Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Viðskipti innlent Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Viðskipti innlent Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR Viðskipti innlent Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira