Rafdrifni Lexus-inn sem á að taka við af LFA Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 7. desember 2022 07:01 Lexus-inn sem á að taka við af LFA. Lexus ætlar að smíða rafdrifinn frammistöðubíl sem mun taka við keflinu af hinum rómaða LFA. LFA er V10 bensín bíll. Nú hafa verið opinberaðar myndir af nýja rafsportbílnum. „
Bíllinn fangar fyrirætlanir fyrirtækisins sem eru að byggja rafbíla með alvöru frammistöðu ig aksturseiginleika,“ segir í tilkynningu frá Lexus. Afturendi bílsins. Bíllinn á að komast úr kyrrstöðu í 100 km/klst á um tveimur sekúndum. Slíkt er á pari við Formúlu 1 bíl. Önnur tala sem Lexus gaf út í dag snýr að drægni bílsins, sem er um 700 km á hleðslunni. „Tölurnar eru auðvitað mikilvægar en ég vill að þessu bíll sé viðmiðið fyrir framtíðar Lexus bíla þegar kemur að aksturseiginleikum og hvernig upplifun Lexus á að skilja eftir,“ sagði Koji Sato, yfirmaður Lexus. Framendinn á Lexus-num. Bíllinn verður líklega búinn stýrisbúnaði sem byggir á að stýrið er ekki tengt beint við hjólabúnaðinn heldur einungis í gegnum víratengingu (e steer-by-wire). Slíkt á að skila betri stýringu á lágum hraða og auknum stöðugleika á hraðbrautum.
Vistvænir bílar Mest lesið Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Kom ráðherra á óvart að viðræðum hefði verið slitið Innlent Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Erlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Erlent Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Gæti stefnt í þungavigtarslag um varaformannsembættið Innlent Jane Goodall látin Erlent