Viðskipti innlent

Lands­bankinn hækkar vexti

Bjarki Sigurðsson skrifar
Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans. Vísir/Vilhelm

Vextir Landsbankans hækka frá og með 12. desember næstkomandi. Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig, sem og breytilegir vextir á verðtryggðum íbúðalánum. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landsbankans. Ákvörðunin er tekin í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 23. nóvember síðastliðnum. Þá hækkaði Seðlabankinn stýrivexti um 0,25 prósent. 

Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum eru nú 7,5 prósent. Fastir vextir nýrra óverðtryggðra íbúðalána hækka um 0,1-0,15 prósentustig og fastir vextir nýrra verðtryggðra íbúðalána hækka um 0,15 prósentustig. 

Kjörvextir á óverðtryggðum og verðtryggðum útlánum hækka um 0,25 prósentustig og yfirdráttarvextir hækka um 0,25 prósentustig. Vextir á óverðtryggðum sparireikningum hækka að jafnaði um 0,25 prósentustig og vextir almennra veltureikninga hækka um 0,05 prósentustig. 

Nýja vaxtataflan tekur gildi mánudaginn 12. desember næstkomandi. Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×