Þetta kemur fram í tilkynningu frá Carbfix. Þar segir að Erling hafi áður verið meðeigandi hjá Deloitte þar sem hann hafi sinnt fjármála- og upplýsingatækniráðgjöf, meðal annars til nýsköpunarfyrirtækja.
„Hjá Deloitte bar Erling m.a. ábyrgð á ráðgjöf í tengslum við kaup og sölu fyrirtækja og nýtingu upplýsingtækni til að stuðla að skilvirkum rekstri.
Erling starfaði í átta ár í Svíþjóð, sem fjármálastjóri tveggja fyrirtækja í örum vexti og síðar hjá Deloitte í Stokkhólmi. Þar áður var Erling meðeigandi hjá Deloitte Íslandi,“ segir í tilkynningunni.
Haft er eftir Erling að Carbfix sé ákaflega spennandi fyrirtæki, enda brautryðjandi í þróun nýrra lausna til varanlegrar kolefnisförgunar. „Það liggur fyrir að slíkar lausnir eru nauðsynlegar til að ná loftslagsmarkmiðum heimsins og ég hlakka mjög til að taka þátt í áframhaldandi þróun fyrirtækisins,“ segir Erling.
Um Carbfix segir að félagið hafi í tíu ár, eða allt frá árinu 2012, fangað CO2 frá Hellisheiðarvirkjun, blandað það ferskvatni og dælt ofan í basaltjarðlög þar sem það umbreytist í stein með náttúrulegum efnahvörfum. „Hefur sú aðferð til varanlegrar og öruggrar förgunar á CO2 vakið heimsathygli. Fyrr í sumar var tilkynnt að verkefni Carbfix um Coda Terminal, móttöku- og förgunarstöð fyrir CO2 í Straumsvík, væri eitt af 17 verkefnum sem hljóta styrki upp á alls 1,8 milljarða evra frá Nýsköpunarsjóði Evrópu (Innovation Fund).“