Segir stuðningsmönnum að láta sig dreyma um titilinn Valur Páll Eiríksson skrifar 27. desember 2022 14:01 Eddie Howe segir ekki útilokað að Newcastle verði í baráttunni um enska meistaratitilinn allt til loka. EPA-EFE/PETER POWELL Eddie Howe, knattspyrnustjóri Newcastle á Englandi, hefur hvatt stuðningsmenn félagsins að dreyma stórt. Liðið situr óvænt í öðru sæti ensku deildarinnar.
Newcastle vann öruggan 3-0 sigur á Leicester City á öðrum degi jóla og fór með þeim sigri upp fyrir Englandsmeistara Manchester City í annað sæti deildarinnar. Manchester-liðið á þó tvo leiki inni á norðanmenn. Newcastle hefur bætt leik sinn afar mikið frá því að Howe tók við í fyrra en félagið var keypt af fjárfestingarsjóði sádíska ríkisins. Liðið á því í djúpa vasa að sækja og ætla eigendur liðsins sér langt. Lítið hefur þó borið á kaupum á stórstjörnum á Norður-Englandi hingað til, þó töluverðum fjármunum hafi verið eytt. Á miðað við lið Newcastle á pappír er óhætt að segja að lið Howe sé á undan áætlun í toppbaráttunni en þjálfarinn virðist þess fullviss að liðið sem hann er með í höndunum geti farið langt. „Við getum gert hvað sem er,“ sagði Howe eftir sigurinn á Leicester. „Þetta tímabilið er það skammt á veg komið að okkur standa allar dyr opnar. Ég vil að stuðningsmenn okkar trúi að við getum gert hvað sem er,“ „Mitt hugarfar mun ekki breytast, en fyrir mér er ekkert vandamál að stuðningsmenn láti sig dreyma um hvað við getum afrekað,“ sagði Howe. Newcastle mætir Leeds í næsta deildarleik liðsins á gamlársdag áður en það mætir toppliði Arsenal snemma á nýju ári.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Ten Hag aðvarar Antony: „Verður að vinna sér inn réttinn til að spila“ Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ „Þú færð mikið borgað svo þú mátt ekki sýna tilfinningar“ Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham Höjlund enn fjarri góðu gamni en varnarþríeykið klárt í slaginn Englandsmeistarinn Ingle með slitið krossband Fannst mark Gabriels vera ólöglegt Sjá meira