Erlendur þjálfari kemur til greina Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. febrúar 2023 14:30 Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ. Vísir Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, segist vera til í að skoða alla kosti í starf landsliðsþjálfara karla í handbolta.
HSÍ náði samkomulagi við Guðmund Þórð Guðmundsson í gær um að hann hætti störfum sem landsliðsþjálfari. Guðmundur var með samning fram á næsta ár. Nafn Dags Sigurðssonar hefur oftast verið nefnt í umræðunni um arftaka Guðmundur en hann er aftur á móti ekki laus fyrr en í ágúst á næsta ári. Hann er þjálfari japanska landsliðsins. Ef HSÍ vill fá Dag er staðan snúin. Sambandið yrði þá að ráða þjálfara til aðeins eins árs sem er væntanlega ekki ákjósanlegur kostur fyrir flesta þjálfara. „Ég er á því að við verðum að skoða þjálfara til lengri tíma,“ segir Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, í samtali við Vísi. „Það er annars allt óráðið í þessu. Við setjumst væntanlega niður í næstu viku og förum að ræða hvernig þjálfara við viljum, hvernig teymið þarf að vera og annað í þeim dúr. Það er að mörgu að hyggja og við viljum vanda okkur.“ Ísland á heilan aragrúa af frábærum þjálfurum sem eru að gera það gott víða um heiminn. Er HSÍ eingöngu að skoða íslenska þjálfara eða koma erlendir þjálfarar einnig til greina? „Erlendur þjálfari kemur allt eins til greina. Af hverju ætti ég að loka hurðinni á einhvern möguleika? Það getur vel verið að við teljum það gott að fá erlendan aðila með ferska strauma inn. Það er bara allt opið í þessu en ekkert ákveðið.“
Landslið karla í handbolta Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Enski boltinn Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Fleiri fréttir Einar Bragi fór mikinn í mikilvægum sigri Afhentu Akureyringum fimmta tapið í röð Donni markahæstur í dramatískum sigri Frakkar fengu bronsið eftir spennutrylli Eyjakonur gerðu sér góða ferð upp á land Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Forsetinn mætir ekki á úrslitaleik HM kvenna Leik lokið: Haukar - KA/Þór 35-20 | Þriggja leikja taphrinu lokið með fimmtán marka sigri Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Sjá meira