Innlent

Sparkaði í bíla og var hand­tekinn

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Lögreglan sinnti nokkrum fjölda útkalla í dag.
Lögreglan sinnti nokkrum fjölda útkalla í dag. Vísir/Vilhelm

Eins og oft áður var nóg um að vera í miðborg Reykjavíkur í dag. Tilkynnt var um innbrot í fyrirtæki og annað innbrot í nýbyggingu. Þá var einn handtekinn og vistaður í fangaklefa fyrir að hafa sparkað í bifreiðar í miðborginni. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Tilkynnt var um einstakling með „leiðindi“ við heimsókn á ótilgreinda stofnun í Hafnarfirði í dag, eins og fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í sama hverfi hafði lögregla afskipti af betlara.

Í Laugardalnum var tilkynnt um nágrannadeilur og í sama hverfi var brotist inn í fyrirtæki. Þjófar höfðu á brott farsíma og heyrnartól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×