Kristall Máni og Ísak Snær máttu sætta sig við tap Smári Jökull Jónsson skrifar 3. maí 2023 18:31 Kristall Máni Ingason í leik með U21-landsliðinu gegn Kýpur í fyrra þar sem hann skoraði tvö mörk. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Kristall Máni Ingason og Ísak Snær Þorvaldsson máttu sætta sig við tap í norsku deildinni í knattspyrnu í kvöld þegar lið þeirra Rosenborg beið lægri hlut gegn Brann.
Kristall Máni og Ísak Snær gengu báðir til liðs við Rosenborg á síðasta ári en norska stórliðið hafnaði í þriðja sæti norsku deildarinnar á síðasta tímabili og varð síðast meistari árið 2018. Kristall Máni byrjaði í fremstu víglínu Rosenborg í kvöld en Ísak Máni á bekknum. Gestirnir frá Bergen komust í 1-0 á 15. mínútu þegar Sivert Nilsen skoraði og staðan í hálfleik var 1-0. Á 78. mínútu skoraði Bard Finne annað mark Brann og tryggði þeim góðan útisigur. Kristall Máni var tekinn af velli á 68. mínútu leiksins en Ísak Snær kom inn af bekknum á 75. mínútu. Rosenborg er um miðja deild með sex stig eftir fimm umferðir. Í norsku B-deildinni mættust Íslendingaliðin Kristiansund og Sogndal. Brynjólfur Andersen var ekki í leikmannahópi Kristiansund en þeir Jónatan Ingi Jónsson og Valdimar Ingimundarson voru báðir í byrjunarliði Sogndal. Það voru heimamenn í Kristiansund sem höfðu betur og unnu góðan 2-1 sigur. Jónatan Ingi lagði upp mark Sogndal þegar liðið jafnaði metin í 1-1 í síðari hálfleiknum en Kristiansund tryggði sér sigur með marki undir lokin. Þá kom Júlíus Magnússon inn af bekknum hjá Fredrikstad þegar liðið gerði 0-0 jafntefli gegn Bryne á útivelli. Júlíus kom inn á 66. mínútu en hann gekk til liðs við Fredrikstad frá Víkingum í vetur.
Norski boltinn Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Fleiri fréttir Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Sjá meira