Stærsta stöð N1 á Suðurnesjum N1 5. maí 2023 12:18 Nýja þjónustumiðstöð N1 mun rísa að Flugvöllum í Reykjanesbæ. Hún verður stærsta stöð fyrirtækisins á Suðurnesjum og eina stöðin hérlendis sem mun bjóða upp á dekkja- og smurþjónustu auk eldsneytis- og rafhleðslustöðva. Skóflustunga hefur verið tekin að nýrri þjónustumiðstöð N1 að Flugvöllum í Reykjanesbæ.
Um verður að ræða stærstu stöð fyrirtækisins á Suðurnesjum og einu stöðina á Íslandi sem mun bjóða upp á dekkja- og smurþjónustu auk eldsneytis- og rafhleðslustöðva. Áætlað er að framkvæmdum ljúki við stöðina í september árið 2023, en þeim hafði verið frestað um nokkur ár vegna heimsfaraldursins. Stöðin verður alls 1370 fermetrar að stærð og áætlað er að við opnunina skapist 10 ný störf á Suðurnesjum. „Nýja stöðin verður mikilvægur þáttur í uppbyggingunni á þessu svæði. Við teljum mikilvægt að geta ekki aðeins þjónustað fólk sem á leið um svæðið heldur jafnframt alla þá starfsemi sem fer fram að Flugvöllum,” segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, segir að ákveðið hafi verið að ráðast í framkvæmdirnar því að núverandi verkstæði fyrirtækisins að Ásbrú sé orðið of lítið. Þar að auki standi það ekki lengur undir þeim kröfum sem N1 gerir um aðstöðu fyrir viðskiptavini og starfsfólk. Nýja stöðin mun þjónusta fjölmargar bílaleigur og ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu ásamt því að þjónusta starfsemi sem reiðir sig á stærri farartæki. N1 mun því geta þjónustað fjölbreyttan hóp viðskiptavina á þessu mikilvæga svæði. „Nýja stöðin verður mikilvægur þáttur í uppbyggingunni á þessu svæði. Við teljum mikilvægt að geta ekki aðeins þjónustað fólk sem á leið um svæðið heldur jafnframt alla þá starfsemi sem fer fram að Flugvöllum. Má þar nefna fjölmargar bílaleigur og ferðaþjónustufyrirtæki sem við eigum nú þegar í samstarfi við, ásamt því að geta þjónustað starfsemi sem reiðir sig á stærri farartæki. Þetta verður fyrsta N1-stöðin þar sem við tengjum saman dekkja- og smurþjónustu við hefðbundna þjónustustöð auk þess að vera með stærðarinnar dekkjahótel. Við munum því vel geta þjónustað fjölbreyttan hóp viðskiptavina á þessu mikilvæga svæði,“ segir Hinrik. Nánari upplýsingar veitir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, í síma 4401040 / hinrik@n1.is.
Bensín og olía Orkuskipti Mest lesið Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Viðskipti innlent Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Viðskipti innlent Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Viðskipti innlent „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðskipti innlent Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Viðskipti innlent Isavia gefur strandaglópum engin grið Viðskipti innlent Búið að greiða laun og barnabætur Viðskipti innlent Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Viðskipti innlent Gjörbreyttar kröfur og vinna ekki lengur aðeins til að hafa í sig og á Atvinnulíf Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira